Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, flutti ræðu í störfum þingsins á þriðjudag, þar sem hún fjallaði um þau mál sem drífa hana áfram í störfum sínum í þinginu. Hún hefur nú setið á Alþingi í um það bil 11 mánuði, í fjarveru Rögnu Sigurðardóttur, sem hefur verið í fæðingarorlofi, en er á leið til baka.
Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur fengið að njóta krafta Sigurþóru, ekki síst í velferðarmálum, en hún hefur setið í velferðarnefnd og komið að vinnslu fjölda góðra mála þar. Þar er hún sannarlega á heimavelli, enda sagði hún í ræðu sinni að hennar drifkraftur væri „fyrst og fremst velferð; velferð barna, velferð fólks sem þarf aðstoð, sem er veikt, sem þarf stuðning eða lækningu, fólks sem þarf velferðarkerfið.“
Í lok ræðu sinnar hvatti Sigurþóra þingheim til að lyfta sér yfir flokkadrætti og hafa hugfast af hverju þau væru á þingi. „Það eru forréttindi að sitja á Alþingi Íslendinga,“ voru svo lokaorð ræðunnar.
Ræðan í heild sinni:
„Virðulegi forseti. Þegar ég bauð mig fram til Alþingis hugsaði ég til orða Nancy Pelosi, fyrrverandi forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sem sagði, með leyfi forseta, að það væru tveir hlutir sem frambjóðendur og þingmenn ættu alltaf að hafa í huga. Í fyrsta lagi: Af hverju? Hvað drífur mig áfram? Og svo í öðru lagi: Af hverju ég? Hvað hef ég til málanna að leggja?
Mín ástæða og minn drifkraftur er fyrst og fremst velferð; velferð barna, velferð fólks sem þarf aðstoð, sem er veikt, sem þarf stuðning eða lækningu, fólks sem þarf velferðarkerfið. Það er viðfangsefni hv. velferðarnefndar Alþingis þar sem ég hef setið. Velferðarnefnd hefur verið mjög skilvirk á þessu þingi. 16 lög hafa verið samþykkt frá nefndinni á Alþingi, tvö mál bíða 2. umræðu og sjö stjórnarmál eru í vinnslu nefndarinnar.
Þetta eru alls konar mál sem snúa að velferð fólks; samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, margvísleg mál er snúa að því að bæta afkomu bótaþega almannatrygginga og við höfum bætt réttindi fólks í foreldra- og sorgarleyfi. Við höfum tekið til í ýmsu, svo sem með sameiningu stofnana, og klárað ýmis eldri mál sem ekki náðist hjá fyrri stjórn. Nú fjallar nefndin um mörg stór mál er snúa að heildarendurskoðun laga. Má þar nefna sóttvarnalög, sem verða hér á eftir í 2. umræðu, réttindavernd fatlaðs fólks, framkvæmd öryggisráðstafana og réttindi sjúklinga.
Velferðarnefnd bíður svo eftir að fá inn á sitt borð heildarendurskoðun barnaverndarlaga sem ég fæ því miður ekki að fylgja eftir. Það er magnað að horfa á þennan afrakstur og þótt stundum hafi hvesst í vinnu nefndarinnar vil ég segja að samstarfið hefur verið ánægjulegt.
Frú forseti. Við stöndum frammi fyrir miklum breytingum; tæknibreytingum, lýðfræðilegum breytingum og auknum kröfum til kerfanna. Við getum ekki leyst þær með gömlum aðferðum. Við þurfum að hugsa nýtt, vera skapandi og virkja samfélagið með okkur. Við megum aldrei gleyma því að kerfin eru til fyrir fólk, raunverulegt fólk í raunverulegum aðstæðum. Ég hvet ykkur, kæru samstarfsfélagar, til að halda áfram góðu starfi, lyfta ykkur yfir flokkadrætti og muna alltaf af hverju þið eruð hér. Það eru forréttindi að sitja á Alþingi Íslendinga.“
