Þjóðin „of fámenn fyrir mikinn ójöfnuð og öfgar í pólítík“

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar og forsætisráðherra sagði, í ræðu sinni flokksstjórnarfundi á laugardag, að hér á landi ættum við eitthvað alveg sérstakt saman, sem væri dýrmætt og okkur bæri skylda til að vernda og varðveita, fyrir framtíðarkynslóðir. Hún sagði að á Íslandi byggi stolt þjóð, sem setti markið hátt fyrir alla sem hér búa – og væri „of fámenn fyrir mikinn ójöfnuð og öfgar í pólitík“.

„Þess vegna býður Samfylkingin fram til Alþingis og sveitarstjórna: Við stöndum þétt með þjóðinni. Við tökum ábyrgð á Íslandi og við tökum ábyrgð á nærsamfélagi okkar, hringinn í kringum landið. Enda vitum við að hugsjónir jafnaðarmennsku eru sameinandi afl – sigrandi afl – og langsterkasta svarið gegn þeim stjórnmálaflokkum sem ala á sérhagsmunum og sundrungu,“ sagði Kristrún í ræðu sinni, frammi fyrir fullum sal Samfylkingarfólks.

Á sama tíma, sagði Kristrún, eru hægriflokkarnir í stjórnarandstöðunni búnir að hlaupa frá miðjunni og út í jaðarinn. „Frá hinum almenna manni út í hugmyndafræðilega mýri, lengst til hægri,“ sagði formaðurinn, og bætti við:

„Ég hef ekki lagt það í vana minn að segja of mikið um aðra flokka eða trufla þá á meðan þeir eru að gera mistök: En hver er munurinn á þessum flokkum í dag? Þetta er allt að renna saman. Jafnvel flokkar með glæsta sögu eins og Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Merkilegir flokkar á marga lund, sem gættu þess að fara aldrei of langt frá miðju stjórnmálanna, en virðast núna sáttir með að enda í knippi með Miðflokki, alltaf á harðahlaupum á eftir því sem dreifist hraðast á TikTok þann daginn, eða því sem fær flesta þumla á Facebook, og keppast við að úthúða okkur jafnaðarfólki og útiloka jafnvel samstarf við fólk eins og okkur! Það er dapurlegt að fylgjast með þessari þróun.“

„Förum ekki á taugum“

Í ræðu sinni ræddi formaðurinn einnig um stöðu efnahagsmála og þau vonbrigði sem verðbólgumælingar og ný vaxtaákvörðun eru, í kjölfar þess að síðasta haust hafði náðst tveggja prósenta lækkun stýrivaxta á einu ár, eftir fimm vaxtalækkanir í röð – og verðbólgumæling sem var sú lægsta í fimm ár.

„Við gerum ekki lítið úr vandanum og dettur ekki í hug að hlaupast undan ábyrgð. Enda settum við háleit markmið um að negla niður vexti og verðbólgu. Þjóðin veit, allra best, að þetta getur reynst þrautin þyngri. Og leiðin hefur nú reynst skrykkjóttari en við vonuðum,“ sagði Kristrún en minnti viðstadda svo á að „árangur vinnst ekki alltaf í einu skrefi“.

„Þróunin hefur verið í rétta átt. Það er staðreynd. Og þó að nú hafi orðið bakslag og horfur hafi versnað vegna stríðsátaka við Persaflóa, þá getur sú þróun gengið hratt til baka sömuleiðis.“

Hún bætti við að það sem mestu skipti væri að við misstum ekki sjónar á verkefninu.

„Förum ekki á taugum. Höldum plani. Höldum áfram að laga ríkisfjármálin. Til að ríkið sé ekki alltaf að kynda undir verðbólgu og þenslu í hagkerfinu. Þannig tryggjum við að ríkið geri sitt.

Eitt er víst, til að svara þeim sem hafa hæst í þórðargleði þessa daga: Það kemur ekki til greina að hverfa aftur til þeirrar efnahagsstjórnar sem færði okkur 10% verðbólgu og 9,25% vexti. Það kemur alls ekki til greina. Og nei, það kemur ekki til greina að dusta rykið af áætlunum fyrri ríkisstjórnar um áframhaldandi hallarekstur ríkisins út þetta ár og það næsta,“ sagði Kristrún.

Forsætisráðherran sagði líka að fólkið í landinu væri ekki að biðja um skammtímaskyndilausnir, heldur vissi það að leiðin að settu marki gæti verið skrykkjótt.

„Og það sagði enginn að þetta ætti að vera auðvelt. En ég hef trú á verkefninu: Ég veit að við getum gert betur í hagstjórninni en verið hefur á síðustu árum. Ég veit að við getum rekið góða velferðarpólitík á Íslandi með ríkissjóð réttum megin við núllið og náð að vinna niður verðbólgu og vexti. Og ég veit að við gerum það best með því að taka ábyrgð á stöðunni, ekki með endalausum bendingum á einhverja aðra. Við gerum þetta saman.“

Ræðu Kristrúnar má lesa í heild sinni á vef Samfylkingarinnar.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading