Sjö aðgerðir til að bæta þjónustu við börn með vímuefnavanda

Starfshópur forsætisráðherra kynnti sjö tillögur til að styrkja þjónustu við börn með vímuefnavanda á fundi ríkisstjórnarinnar í dag, þriðjudag. Tillögurnar eru á ábyrgðarsviði fjögurra mismunandi ráðuneyta og hefur ríkisstjórnin ákveðið að fylgja þessum tillögum eftir og vinna að frekari útfærslu aðgerða á grundvelli þeirra.

Hlutverk starfshópsins var að rýna stöðu þjónustu við börn með vímuefnavanda og leggja fram tillögur um úrbætur. Sérstök áhersla var lögð á börn með flókinn og samsettan vanda sem þurfa sérhæfða og samþætta þjónustu. Þessi mál hafa verið mjög í deiglunni undanfarin misseri og ljóst hefur verið að bæta þarf úrræði sem þessum hópi barna standa til boða hérlendis.

Uppbygging sérhæfðrar fíknigeðdeildar sett á dagskrá

Á meðal tillagnanna er að unnið verði að því að gera samninga við viðeigandi meðferðarúrræði erlendis fyrir börn með alvarlegan vímuefnavanda ef þörf krefur, þar til sambærileg úrræði verði byggð upp á Íslandi. Önnur tillaga er um að unnið verði að uppbyggingu sérhæfðrar fíknigeðdeildar fyrir börn hér á landi, að undangenginni fýsileikagreiningu. Deildin á að verða samþætt þjónustueining sem fyllir í núverandi skarð í þjónustukeðjunni hérlendis.

Í skýrslu starfshópsins kemur fram að þrátt fyrir að ýmis mikilvæg úrræði séu til staðar sé þjónusta við þennan hóp að mörgu leyti brotakennd eins og hún birtist börnum og fjölskyldum þeirra. Helstu áskoranir lúta meðal annars að óskýrri ábyrgðarskiptingu milli kerfa, takmarkaðri samhæfingu barnaverndar og heilbrigðisþjónustu og skorti á sérhæfðum úrræðum fyrir börn með samsettan vanda.

Tilkynning um málið á vef stjórnarráðsins

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading