Kjartan Atli Kjartansson fjölmiðlamaður og þjálfari er oddviti framboðslista Samfylkingarinnar í Garðabæ, sem kynntur var og samþykktur fyrir fullu húsi síðdegis á mánudaginn. Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir fjármála- og rekstarstjóri er í öðru sæti listans og Rakel Margrét Viggósdóttir kennari og deildarstjóri skipar þriðja sætið.
Mikil ánægja er hjá Samfylkingarfólki í Garðabæ með öflugan frambjóðendahóp, en flokkurinn býður nú fram undir eigin merkjum í bænum í fyrsta sinn síðan 2014.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Garðabæ skipaður öflugu fólki á öllum aldri með fjölbreytta reynslu og bakgrunn. Á næstu vikum mun framboðið kynna sína framtíðarsýn og þróa stefnumál í samtali við íbúa.
Framboðslistinn í heild sinni:
1. Kjartan Atli Kjartansson, stjórnmálafræðingur, fjölmiðlamaður, þjálfari og rithöfundur
2. Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, fjármála- og rekstrarstjóri
3. Rakel Margrét Viggósdóttir, kennari og deildarstjóri
4. Vilmar Pétursson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun
5. Ögmundur Árni Sveinsson, viðskiptafræðinemi og þjálfari
6. Katrín Júlíusdóttir, f.v. ráðherra, ráðgjafi og rithöfundur
7. Rósanna Andrésdóttir, grunnskólakennari og alþjóðafræðingur
8. Bjarni Thor Kristinsson, óperusöngvari, menningarstjórnandi og leikstjóri
9. Guðfinna Guðmundsdóttir, f.v. bæjarfulltrúi , matreiðslumeistari og menntunarfræðingur
10.Ragnheiður Hergeirsdóttir, f.v. bæjarstjóri, félagsráðgjafi og lektor við H.Í.
11.Freyja Kvaran, stjórnmálafræðinemi
12.Jón Gunnlaugur Viggósson, íþróttastjóri HSÍ
13.Ásdís Magnúsdóttir, lögfræðingur
14.Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
15.Stefán Arinbjarnarson, f.v. íþrótta- og tómstundafulltrúi Álftaness, kennari og þjálfari
16.Gréta Ósk Óskarsdóttir, bókmenntafræðingur og bætiefnaráðgjafi
17.Birta Mjöll Antonsdóttir, launaráðgjafi
18.Heiða Mist Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur
19.Kristján Sveinbjörnsson, fv. bæjarfulltrúi, rafverktaki, hönnuður og byggingastjóri
20.Rafn Svanur Oddsson, f.v. slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og vélvirki
21.Edda Gíslrún Kjartansdóttir, grunnskólakennari
22.Guðmundur Andri Thorsson, f.v. alþingismaður og rithöfundur
