Sindri S. Kristjánsson skrifstofustjóri og Hanna Dóra Markúsdóttir grunnskólakennari eru í efstu tveimur sætum á framboðslista Samfylkingarinnar á Akureyri, sem samþykktur var á fjölmennum fundi Samfylkingarfólks í bænum síðasta laugardag.
Samfylkingin hefur átt einn fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar á þessu kjörtímabili, Hildu Jönu Gísladóttur. Hún hefur ákveðið að láta staðar numið í bæjarmálunum eftir að hafa staðið í stafni hjá Samfylkingunni í bænum frá 2018. Sindri tekur við keflinu, en hann hefur verið varabæjarfulltrúi á kjörtímabilinu.
„Ég er mjög þakklátur uppstillingarnefnd og félögum mínum í flokknum sem ákváðu að treysta mér til að leiða listann. Listinn er ótrúlega öflugur, bæði fjölbreyttur en traustur í senn. Með þessum lista sendum við skýr skilaboð til bæjarbúa. Við ætlum að setja menntamál og velferðarmál rækilega á oddinn ásamt að ungum Akureyringum er treyst til ábyrgðar og verka. Verkefnið framundan er stórt en það er jafnframt spennandi og skemmtilegt. Jafnaðarfólk á Akureyri er mætt til leiks,“ segir Sindri S. Kristjánsson.
Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri var kynntur í dag og er þannig skipaður:
- Sindri S. Kristjánsson, skrifstofustjóri og varabæjarfulltrúi
- Hanna Dóra Markúsdóttir, grunnskólakennari
- Sigrún Steinarsdóttir, stofnandi Matargjafir Akureyri og nágrenni
- Jóhannes Már Pétursson, háskólanemi
- Zane Brikovska, starfsmaður á Bjargey meðferðarheimili
- Baldur Sverrisson, framhaldsskólakennari
- Elsa María Guðmundsdóttir, sjónlistakennari
- Elvar Björn Ólafsson, nemi
- Kristín Helga Schiöth, alþjóðafræðingur og blómakona
- Jóhann Jónsson, innkaupastjóri
- Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir, nemi og íshokkíkona
- Kristinn Berg Gunnarsson, framhaldsskólakennari
- Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir, háskólanemi
- Hallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Saga Travel
- Anna Sigga Jökuls Ragnheiðard., sálfræðingur
- Unnar Jónsson, forstöðumaður
- Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri
- Eiður Stefánsson, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri
- Sigríður Huld Jónsdóttir, fv.bæjarfulltrúim verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur
- Þorsteinn Þorsteinsson, fuglaskoðunarmaður
- Guðrún Gunnarsdóttir, eldri borgari
- Ragnar Sverrisson, kaupmaður
