Jónas Már kveikti í Kópavogsíhaldinu

Bygging nýrrar slökkvistöðvar í efri byggðum Kópavogs hefur verið nokkuð til umfjöllunar undanfarið, eftir að Jónas Már Torfason, nýr oddviti Samfylkingarinnar í bænum, vakti máls á því að ráðandi pólitísk öfl í Kópavogi hefðu sett fram fordæmalausa kröfu um endurgjald fyrir lóðina frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og að seinkun hefði orðið á uppbyggingu stöðvarinnar.

Sjálfstæðismenn, sem mynda meirihluta í Kópavogsbæ með Framsókn, hafa farið nokkuð mikinn í andsvörum sínum við greinarskrifum Jónasar um þetta efni. Efnislega hefur hins vegar lítið heyrst í þeim síðan að Jónas Már skrifaði aðra grein 28. febrúar og fór lið fyrir lið yfir þróun málsins eins og það blasir við almenningi, í gegnum fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Staðreyndin er sú, eins og Jónas Már rekur í grein sinni, að núna, einu og hálfu ári eftir að krafa um greiðslu gjalda fyrir lóðina var fyrst sett fram af hálfu bæjarstjórans í Kópavogi, bólar ekkert á niðurstöðu um hvort Kópavogsbær muni halda þessari kröfu til streitu. Forystufólk í bæjarstjórninni hefur ekki svarað því, þrátt fyrir ítrekaðar spurningar.

Hins vegar liggur fyrir að áætlanir sem varða slökkvistöð í Tónahvarfi eru á eftir áætlun. Í ágúst síðastliðnum var fjallað um það á vettvangi stjórnar slökkviliðsins að fyrri áform um fjölgun í varðliðinu vegna stöðvarinnar við Tónahvarf frestist.

Sjálfstæðismenn segja að þetta tvennt tengist ekki og að góður gangur sé í uppbyggingu slökkvistöðvar í efri byggðum Kópavogs. Hún verði klár árið 2030.

Hins vegar er óljóst hvort halda eigi fordæmalausum kröfum um endurgjald fyrir lóðina til streitu – en ljóst er af minnisblöðum sem sett hafa verið fram af öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu í stjórn slökkviliðsins að slíkar kröfur gætu leitt til þess að önnur sveitarfélög gerðu afturvirkar kröfur um endurgjald fyrir lóðir þar sem slökkviliðsstöðvar standa í dag.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading