Kristinn og Sigurþóra standa í stafni á Seltjarnarnesi

Listi Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra frambjóðenda var kynntur í Golfskálanum á Seltjarnarnesi á sunnudag. Framboðið sameinar fólk með fjölbreyttan bakgrunn í rekstri, stjórnsýslu, nýsköpun, skipulagsmálum og samfélagsstarfi.

Kristinn Ólafsson leiðir listann og er bæjarstjóraefni framboðsins. Hann er reyndur  stjórnandi með áratuga reynslu af rekstri, mannauðsmálum og markaðsstarfi, hefur starfað bæði hjá félagasamtökum og fyrirtækjum og tekið virkan þátt í samfélags- og sjálfboðastarfi á Seltjarnarnesi. Sannkölluð Seltjarnarneskempa, eins og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður og formaður uppstillingarnefndarinnar lýsti honum við kynningu listans.

Í öðru sæti listans er Sigurþóra S. Bergdóttir. Hún er varaþingmaður með meistaragráðu í félags- og vinnusálfræði og hefur stýrt fjölbreyttum þjónustuverkefnum hjá ríki, borg og einkageira og setið í bæjarstjórn Seltjarnarness frá 2018.

Helgi Steinar Helgason skipar þriðja sætið á listanum. Hann er arkitekt með meistaragráðu frá Arkitektaskólanum í Árósum og hefur starfað við arkitektúr og skipulagsmál, rekið arkitektastofur og gegnt trúnaðarstörfum innan fagstéttar og menningarlífs.

Í fjórða og fimmta sæti eru svo ungir Seltirningar, þau Auður Halla Rögnvaldsdóttir stjórnmálafræðinemi og Egill Ö. Hermannsson, sérfræðingur hjá Fjársýslunni.

Tækifæri til að taka til hendinni

Frambjóðendur segja að Seltjarnarnes hafi alla burði til að vera eitt öflugasta og eftirsóknarverðasta sveitarfélag landsins. Á sama tíma sé ljóst að áskoranir hafi safnast upp í fjármálum og innviðum bæjarins á undanförnum árum.

Markmið listans er að taka á þessum verkefnum af ábyrgð, styrkja þjónustu við íbúa og byggja upp lifandi samfélag á Nesinu þar sem mannlíf, skólar og þjónusta standa undir væntingum bæjarbúa.

Frambjóðendur leggja sérstaka áherslu á ábyrga fjármálastjórn, sterka skóla og þjónustu við fjölskyldur, auk þess að efla samfélagslíf og bæjarbrag á Seltjarnarnesi.

„Við erum með sterkan hóp fólks sem vill leggja sitt af mörkum til að gera góðan bæ enn betri. Seltjarnarnes á að vera bæjarfélag þar sem þjónusta, skólar og bæjarbragur standa undir væntingum íbúa. Við viljum taka ábyrgð á því að snúa rekstrinum við og byggja upp bæinn aftur með skýrri sýn og góðu samstarfi við íbúa. Markmið okkar er að taka á þeim verkefnum sem blasa við og byggja upp sterkt og lifandi samfélag á Nesinu,“ segir Kristinn Ólafsson, oddviti listans.

Framboðslisti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi:

1. Kristinn Ólafsson, stjórnandi og ráðgjafi

2. Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður

3. Helgi Steinar Helgason, arkitekt

4. Auður Halla Rögnvaldsdóttir, háskólanemi 

5. Egill Ö. Hermannsson, sérfræðingur hjá Fjársýslunni

6. Áslaug Eva Björnsdóttir, ráðgjafi í stafrænni umbreytingu

7. Kristín Edda Óskarsdóttir, ráðgjafi og frumkvöðull

8. Garðar Svavar Gíslason, viðskiptafræðingur

9. Halla Helgadóttir, sálfræðingur 

10. María Stefánsdóttir, umhverfisverkfræðingur

11. Björg Þorsteinsdóttir, kennari við Valhúsaskóla

12. Skúli Eiríksson, kerfisfræðingur

13. Karen María Jónsdóttir, stafrænn leiðtogi

14. Guðmundur Ari Sigurjónsson, alþingismaður

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading