Maskína og Prósent birtu nýjustu kannanir sínar á fylgi stjórnmálaflokka í vikunni. Í könnunum Maskínu hefur fylgi Samfylkingarinnar tilhneigingu til að mælast nokkrum prósentustigum minna en í könnunum Gallup, sem vanalega eru birtar í kringum mánaðarmót. Þannig mældist fylgi Samfylkingarinnar 31,2 prósent hjá Gallup í lok janúar en 27 prósent hjá Maskínu.
Í nýjustu könnun Maskínu bætir Samfylkingin lítillega við sig milli mánaða og mælist nú með 27,2 prósent. Slíkt fylgi er vel fyrir ofan niðurstöðu síðustu kosninga, myndi gera flokkinn að langstærsta stjórnmálaafli landsins og því eina sem mælist með meira en fimmtungsfylgi. Stjórnarflokkarnir þrír mælast með nákvæmlega sama sameiginlega fylgi og þeir voru með mánuði áður.

Mesta athygli hefur þó vakið að Miðflokkurinn tapar töluverðu fylgi milli mánaða eftir að hafa bætt við sig í öllum könnunum sem Maskína hefur gert eftir kosningarnar haustið 2024. Alls tapar flokkurinn 3,2 prósentustigum og mælist nú með 19 prósent slétt. Til að setja þá breytingu í samhengi þá er hún sirka allt fylgið sem Sósíalistaflokkur Íslands mælist með um þessar mundir, en fylgi hans mælist 3,1 prósent. Þorri þess fylgis sem Miðflokkurinn tapar fer til keppinautar hans í fjarhægriskapphlaupinu að botninum í sundrandi yfirboðstunnu íslenskra stjórnmála, Sjálfstæðisflokksins. Hann bætir við sig 2,7 prósentum og mælist nú með 16,2 prósenta fylgi hjá Maskínu. Vert er að taka fram að janúarmælingin, sem sýndi einungis 13,5 prósenta stuðning við Sjálfstæðisflokk, var sú næstversta sem flokkurinn hefur nokkru sinni fengið í sögu sinni sem spannar næstum öld. Til samanburðar má líka nefna að versta kosning Sjálfstæðisflokksins í þingkosningum frá upphafi var í þeim síðustu, þegar hann fékk 19,4 prósent eða 3,2 prósentustigum meira en flokkurinn mælist með í dag.
Þá vakti líka töluverða athygli að fylgi Framsóknarflokksins lækkaði lítillega milli mánaða og stendur í sjö prósentum sléttum. Ástæða þess að þetta er eftirtektarvert er að flokkurinn kaus sér nýjan formann, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, um miðjan febrúarmánuð en sú skipstjórabreyting virðist ekki ætla að lækna flóttann af Framsóknarfleyinu neitt.
Ríkisstjórnarflokkarnir á siglingu hjá Prósent
Staðan í könnun Prósents er enn skaplegri fyrir Samfylkinguna, en þar mælist fylgi hennar yfir 30 prósent en fylgi Miðflokksins, sem mælist næst stærstur, er sirka það sama og hjá Maskínu. Fyrir utan aukið fylgi Samfylkingarinnar vekur athygli að Prósent mælir Sjálfstæðisflokkinn í létt-rauðvíns prósentu fylgi, eða með 13,7 prósent. Það er nánast sama fylgi og Viðreisn mælist með.

Stjórnarflokkarnir njóta samanlagt stuðnings meirihluta kjósenda samkvæmt Prósent en minnihlutaflokkarnir mælast þar með mun minna fylgi. Framsókn myndi til að mynda rétt ná inn á þing með 5,9 prósent. Ef könnun Prósents yrði að veruleika myndu 9,5 prósent atkvæða falla niður dauð og ekki skila inn þingmanni, en þar er um að ræða atkvæði greidd Pírötum, Vinstri grænum, Sósíalistaflokki Íslands og Lýðræðisflokknum.
