Sigurlisti Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur

Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík samþykkti lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar á fjölmennum fundi sem haldinn var í Þróttaraheimilinu á fimmtudag. Fyrir lá, eftir umfangsmesta prófkjör sem haldið verður á landinu í aðdraganda kosningana, hvernig sex efstu sætin yrðu mönnum.

Pétur Marteinsson sigraði það með afgerandi hætti og er því með feikilega sterkt umboð til að leiða Samfylkinguna til sigurs í höfuðborginni í maí. Núverandi borgarstjóri, Heiða Björg Helgadóttir, verður í öðru sæti á listanum. Nýliðarnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Stein Olav Romslo og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir fylla önnur efstu sæti ásamt reynsluboltanum Skúla Helgasyni, sem verður í því fjórða.

Regína tekur slaginn

Uppstillingarnefnd var svo falið að stilla upp í önnur sæti á listanum. Hægt er að sjá listann í heild hér.

Að öðrum ólöstuðum, og án þess að á neinn sé hallað, þá vakti mesta athygli að Regína Ásvaldsdóttir, sem hefur verið bæði bæjarstjóri í Mosfellsbæ og á Akranesi ásamt því að hafa stýrt velferðarsviði Reykjavíkurborgar um árabil, ætli að sitja í 7. sæti og stíga þar með í fyrsta sinn inn á hið pólitíska svið. Í færslu á samfélagsmiðlum sagði hún að fyrir sig persónulega væri þetta afar stórt stökk. „Ég hef alltaf verið hinu megin línunnar, að starfa með og fyrir stjórnmálafólk og verið óflokksbundin nánast allan minn starfsaldur. En félagshyggjuhjartað hefur alltaf verið til staðar og ég brenn fyrir samfélagi sem byggir tilvist sína á jöfnum tækifærum og sterku velferðar- og heilbrigðiskerfi. Ég er mjög stolt og ánægð með það traust sem uppstillingarnefnd hefur sýnt mér og hlakka til að vinna með vöskum hópi Samfylkingarfólks undir forystu Péturs Marteinssonar að sigri í vor.“

Birkir Ingibjartsson, arkitekt og varaborgarfulltrúi, skipar áttunda sætið, Isabel Alejandra Díaz, stjórnsýslufræðingur og fyrrum forseti Stúdentaráðs HÍ, er í því níunda og Sara Björg Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi er í því tíunda. Í heiðurssætunum neðst á 46 manna listanum eru svo þrír fyrrverandi borgarstjórar Samfylkingarinnar: Þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Dagur B. Eggertsson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir.

Endurspeglar vilja stórs hluta borgarbúa

Á heimasíðu Samfylkingarinnar er haft eftir Pétri sjálfum að sú mikla endurnýjun sem orðið hefur á lista flokksins endurspegli ekki einungis vilja þeirra þúsunda sem tóku þátt í prófkjörinu í lok janúar heldur líka vilja stórs hluta borgarbúa. „Samfylkingin hefur gengið í gegnum mikla hugmyndafræðilega endurnýjun á síðustu árum og leitt breytingar í landsstjórninni. Ég tel tímabært að yfirfæra hana yfir á rekstur borgarinnar: Klassísk jafnaðarmál, áhersla á góðan grunnrekstur og endurskoðun sumra verkefna og stefnuákvarðana sem hafa verið ráðandi í borginni síðustu kjörtímabil.“

Hópurinn sem skipi listann sé samstíga og kraftmikill. „Fjölbreytt fólk með fjölbreytta reynslu sem ætlar að vinna fyrir og með Reykvíkingum að jákvæðum breytingum í borginni okkar. Nú tekur við milliliðalaust samtal við borgarbúa. Það samtal er reyndar þegar hafið og það hefur verið frábært að finna fyrir jákvæðni alls staðar þar sem við komum. Sérstaklega fyrir mig sem er nýliði í stjórnmálum.“

Samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið í janúar mældust Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur langstærstu flokkarnir í borginni. Athygli vakti að eftir prófkjörið jókst fylgi Samfylkingarinnar og hún mældist þá stærsti flokkurinn með 31,7 prósent fylgi. Könnunin sýndi að Samfylkingin myndi ná inn átta borgarfulltrúum miðað við þá stöðu sem hún sýndi, sem myndi skila Regínu og Birki inn í borgarstjórn ásamt sexmenningunum sem fengu bindandi kosningu í prófkjörinu.

Í könnun Maskínu sem birt var á föstudag mældist Samfylkingin svo stærst í borginni með 24 prósent fylgi og stærstu tíðindin þar voru að Sjálfstæðisflokkurinn hrundi niður í stuðninginni.

Miðað við gengi Samfylkingarinnar á landsvísu í höfuðborginni, þar sem fylgið mælist umtalsvert meira, er þó ljóst að það er möguleiki á að ná enn fleirum inn, mynda félagshyggjumeirihluta undir öruggri stjórn Samfylkingarinnar og gera frábæra Reykjavík enn betri!

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading