Brugðist við breyttum heimi

Dagur B. Eggertsson skrifar:

Fyrstu viðbrögð við ræðu Marcos Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna á öryggisráðstefnunni í München í lok síðustu viku einkenndust af feginleik. Hún var ekki eins illskeytt í garð Evrópu og ræða varaforsetans í fyrra. Rubio valdi orð sín betur, sýndi virðingu og sagðist vilja treysta böndin milli Bandaríkjanna og Evrópu. Það vildu margir heyra.

Þegar búið var að andvarpa og klappa – og lesa ræðuna aftur – standa eftir sömu skilaboð og Mark Carney forsætisráðherra Kanada brást við í áhrifamikilli ræðu á dögunum þar sem hann lýsti rofi í alþjóðakerfinu. Bandaríkin trúa ekki lengur á þær stofnanir sem hafa reynst okkur vel undanfarin 80 ár. Rubio talar um að endurskapa alþjóðakerfið. Hann talar fyrir því að framganga Bandaríkjanna verði ekki bundin af reglum eða hömlum sem þau hafa ekki stjórn á. Bandaríkin þurfi ekki að biðja um leyfi áður en þau láti til skarar skríða.

Rubio nálgast umræðuna út frá því sjónarhorni að Vesturlönd séu á vondum stað. Ráða mátti af máli hans að vandamálin væru alþjóðastofnunum og leikreglum í samskiptum ríkja að kenna. Alþjóðakerfið þyrfti að víkja fyrir hagsmunum einstakra þjóða. Rubio gagnrýndi sérstaklega velferðaráherslur Evrópu. Velferð hefði gert velferðarríki samtímans veik.

Ræða Rubios var ákveðin staðfesting á greiningu Carneys forsætisráðherra Kanada um rofið í alþjóðakerfinu. Carney sagði að til að vera sjálfstæðar þyrftu þjóðir að geta staðist þrýsting stórvelda. Þetta kallaði á nánara bandalag millistórra ríkja.

Forseti Finnlands, Alexander Stubb, hefur einnig verið leiðandi í umræðu um þróun alþjóðamála. Hann birti grein í tímaritinu Foreign Affairs. Hann vill ekki tala um rof heldur umbreytingu. Hann segist þó sammála Carney um margt en skýrir sjónarhorn sitt með því að Finnland þurfi ekki nýja heimsskipan til að skapa sér skjól. Finnland sé í Evrópusambandinu. Ef einhver hóti Finnum refsitollum geti hann alltaf svarað: „Gjörðu svo vel, Evrópusambandið er öflugasta tollabandalag heims og svarar sem ein heild.“ Þeim sem efist um alþjóðaviðskipti megi benda á að Evrópusambandið hafi fríverslunarsamninga við 70 ríki, nú síðast Indland og Suður-Ameríku, eða við hálfa heimsbyggðina.

Umræða um mikilvægi sterkrar og sjálfstæðrar Evrópu er nú rauður þráður. Innan NATO er rætt um þróun í átt að því að NATO verði undir forystu Evrópu. Í þeirri sýn felst þó að áfram verði sterk tengsl yfir Atlantshafið og Bandaríkin og Kanada um borð. En sú efling varna Evrópu sem er fram undan verði innan NATO. Þessi þróun og nýjar ógnir kalli um leið á öfluga aðkomu Evrópusambandsins. Og samstarf ESB og NATO. Ísland fylgist með og á að eiga sæti við þessi borð. Því með orðum Carneys: þú átt sæti við borðið eða þú ert á matseðlinum.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 17. febrúar 2026.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading