Tímabær sameining sýslumannsembætta sýnir að verkstjórn er við völd

Á dögunum samþykkti Alþingi frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um sameiningu sýslumannsembætta. Tillögur að sameiningu embættanna hafa oft sést á þingi síðustu ár, í ýmsum útfærslum, en aldrei náð stuðningi meirihluta þrátt fyrir að vera lögð fram af þáverandi ríkisstjórn. Það þurfti verkstjórnina til að betrumbæta málið og klára það.

Frumvarpið felur í sér að á landinu verði eitt sýslumannsembætti sem sinni þjónustu við landsmenn. Í stuttu máli þýðir það að þú getir labbað inn í hvaða starfsstöð sýslumanns og fengið þá þjónustu sem þig vantar. Ef þú ert staddur í námi á Akureyri en þarft að aflýsa veðskuldabréfi í Reykjavík þá þarftu ekki að ferðast suður til að fá aflýsingu. Þannig eykst þjónustan fyrir alla landsmenn til muna.

Til að tryggja að starfstöðvum verði haldið á landsbyggðinni og þar af leiðandi mýmörgum mikilvægum störfum sérfræðinga var sett inn í lögin að 65% starfa embættisins þyrftu að vera á landsbyggðinni.

Athygli vakti að þrátt fyrir að frumvarp með sama markmið hafi komið frá Sjálfstæðisflokki í ríkisstjórn með Framsóknarflokki og hlotið lof þingmanna flokkanna í ræðustól Alþingis þá greiddu flokkarnir ekki atkvæði með frumvarpinu. Það segir eflaust ýmislegt um stöðuna sem flokkarnir hafa málað sig í og þar af leiðandi misst trúverðugleika í hverri einustu könnun frá kosningum. Best er að vera helst á móti öllu, alveg sama hvað það er.

Fleiri umbótamál á döfinni

Ríkisstjórnin, sem nýtur sögulegra vinsælda, lætur þó ekki staðar numið. Í þinginu er frumvarp til markaðssetningarlaga í vinnslu. Frumvarpið boðar ýmsar mikilvægar breytingar, þar á meðal heimild fyrir ráðherra til að ná stjórn á bílastæðamarkaðinum, landsmönnum til mikilla bóta.

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur til meðferðar frumvarp sem styrkir réttarstöðu þolenda umsáturseineltis og annarra ofbeldisbrota með rafrænu eftirliti á brotamönnum.

Á komandi misserum verða tekin fyrir frumvörp úr húsnæðispakkanum. Má þar nefna breytingar á hlutdeildarlánum, svo þau fari raunverulega að virka fyrir fólk.

Til að ljúka þessari yfirferð í bili er vert að nefna breytingar sem verið er að gera á leigubílalögum sem munu efla vernd notenda leigubílaþjónustu til muna. Leigubílar munu þurfa að vera skráðir á stöð sem heldur úti GPS-eftirliti með bílunum. Stöðvaskyldan setur meiri ábyrgð á herðar rekstraraðila og einfaldar notendum að koma að kröfum eða athugasemdum við þjónustuna, til dæmis ef kemur í ljós að ofrukkað var fyrir þjónustuna.

Það er margt mikilvægt í gangi á þinginu og gott að fylgjast vel með Kratanum, eina vettvanginum til að fá raunstöðuna í pólitíkinni beint í æð.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading