Síðustu helgi hélt Samfylkingin í Kópavogi flokksval um fjögur efstu sæti lista flokksins í komandi sveitastjórnarkosningum. Oddviti listans verður Jónas Már Torfason, fjölskyldumaður og lögfræðingur. Jónas er uppalinn í Kópavogi og er nýfluttur aftur í bæinn eftir dvöl í Danmörku. Áherslur Jónasar eru málefni barnafjölskyldna, barna og ungmenna, málefni eldri borgara auk þess að vilja beita sér í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í bænum.
Í öðru sæti listans verður Eydís Inga Valsdóttir, teymisstjóri hjá Rannís. Þriðja sætið hlaut Hákon Gunnarsson, varabæjarfulltrúi í Kópavogi. Sólveig Skaftadóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, vermir fjórða sætið.
Vel heppnað málþing á vegum 60+
Á fimmtudag héldu Landssamband 60+ innan Samfylkingarinnar og stýrihópurinn um daglegt líf glæsilegt málþing á Grand Hótel þar sem fjallað var um daglegt líf eldra fólks. Meðal umræðuefna var fjárhagur, réttindi, húsnæðismál, þjónusta sveitarfélaga, líðan eldra fólks og hvernig gervigreind getur nýst í daglegu lífi. Meðal ræðumanna voru Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra auk Finnbjörns Á. Hermannssonar forseta ASÍ og Kolbeins Stefánssonar dósents við Háskóla Íslands.
Fjölmenni var á viðburðinum og mikil ánægja á meðal gesta og þetta samtal var gott innlegg í áframhaldandi málefnavinnu Samfylkingarinnar um hvernig létta megi daglega lífið.
Á döfinni eru ýmsir viðburðir á vegum flokksins og má þar til dæmis nefna:
- Samfylkingarfélagið í Mosfellsbæ efnir til fundar á laugardag kl. 11:00 í Þverholti 3 en efni fundarins verða málefni og framtíð Mosfellsbæjar.
- Á mánudag kl. 20:00 heldur Samfylkingin í Hafnarfirði opinn félagsfund um samgöngumál bæjarins. Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni, kemur á fundinn og fer yfir hugmyndir að úrlausnum á umferðarvanda á Hafnarfjarðarsvæðinu. Fundurinn fer fram á Strandgötu 43.
- Samfylkingarfélagið í Reykjavík heldur aðalfund á föstudaginn kl. 17:00. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Frekari upplýsingar er að finna á vef Samfylkingarinnar.
Þá er vert að minna á flokksstjórnarfund sem fer fram í Austurbæjarbíói þann 21. mars.
