Samfylkingin í stórsókn í Reykjavík

Gallup gerði mælingu á fylgi flokka í Reykjavík nýverið og niðurstaðan var birt í Viðskiptablaðinu í liðinni viku. Þar kemur fram að Samfylkingin er í stórsókn og mælist nú með 29,4 prósent fylgi í höfuðborginni. Það er rúmlega níu prósentustigum meira en flokkurinn fékk í síðustu borgarstjórnarkosningum og myndi skila Samfylkingunni átta borgarfulltrúum, en hún fékk fimm kosna árið 2022.

Það má slá því föstu að staða Samfylkingarinnar hafi aldrei verið jafn sterk í aðdraganda borgarstjórnarkosninga og nú og ljóst að mikill meðbyr er með flokknum. Það sást vel í nýafstöðnu og glæsilegu prófkjöri þar sem 16 öflugir einstaklingar sóttust eftir sex efstu sætum á lista. Mörg þúsund manns skráðu sig í flokkinn til að taka þátt í því og meginþorri þeirra hefur ákveðið að halda áfram að vera í flokknum eftir að prófkjörið var yfirstaðið.

Fyrir liggur að Pétur Marteinsson verður nýr oddviti Samfylkingarinnar í borginni og borgarstjórinn, Heiða Björg Helgadóttir, verður í öðru sæti á listanum. Nýliðarnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Stein Olav Romslo og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir fylla önnur efstu sæti ásamt reynsluboltanum Skúla Helgasyni, sem verður í því fjórða. Þessi öfluga blanda reynslu og endurnýjunar virðist vera höfða vel til kjósenda, enda jókst fylgið samkvæmt Gallup daganna eftir prófkjörið.

Þá mældist Samfylkingin stærri en Sjálfstæðisflokkurinn, sem er á svipuðum slóðum fylgislega séð.

Ef horft er á fylgi Samfylkingarinnar á landsvísu í Reykjavíkurkjördæmunum þá er flokkurinn þó alls ekki búinn að reka sig upp í neitt þak. Í Reykjavíkurkjördæmi suður segjast 36,2 prósent styðja Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag og í Reykjavíkurkjördæmi norður er það hlutfall 37 prósent.

Hægt er að hlusta á nýlegt viðtal Kratans við Pétur hér að neðan:

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading