Verðandi borgarstjóri: „ Ég held að Reykvíkingar kaupi þessa pólitík“

„Þetta eru stefnumálin, að taka Tage Erlander, pragmatísmann og bara láta allt virka. Hann bjó til „svenska folkhemmet“  sem er þetta velferðarsamfélag sem við þekkjum í dag, og býr til bestu borgir í heimi. Svo þurfum við aftur að fara bara í grunninn eins og Olof Palme gerði. Bara hvað þýðir að vera jafnaðarmaður? Hvað þýðir þegar einhver er ekki velkominn í samfélagið? Hvað þýðir það fyrir okkur öll? Það er grunnurinn. Og svo kannski Gro Harlem Brundtland, sem náði einhvern veginn að tengja þetta bæði saman. Þetta þurfum við öll að vera meðvituð um og megum ekki gleyma. Þetta er okkar hlutverk í pólitíkinni. Ég held að Reykvíkingar kaupi þessa pólitík. Nú þurfum við að vera sannfærandi og sýna á spilin. Þá held ég að okkur muni vegna vel í vor.“

Þetta segir Pétur Marteinsson, sem var fyrir tæpri viku kosinn næsti oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, í viðtali við hlaðvarp Kratans. Hann sigraði í risastóru flokksvali þar sem næstum sjö þúsund manns voru á kjörskrá og næstum fimm þúsund greiddu atkvæði. Sigur Péturs var afgerandi og umfang flokksvalsins staðfesting á hversu stór Samfylkingin er orðin að nýju.

Líkt og flestir jafnaðarmenn vita var Tage Erlander forsætisráðherra Svíþjóðar í 23 ár og er gjarnan talinn helsti hönnuður norræna velferðarheimilisins. Umbótasinninn Olof Palme tók við af honum og stýrði sænskum jafnaðarmönnum þangað til að hann var myrtur árið 1986 og Gro Harlem Bruntland varð fyrsta konan til að verða forsætisráðherra Noregs árið 1981 og áhrifamesti stjórnmálamaður þess lands langt fram á tíunda áratug síðustu aldar.

Fjarri lagi að einn maður vinni kosningar

Í viðtalinu fer Pétur yfir hversu mikilvægt það sé að jafnaðarmennskan ráði áfram för í höfuðborginni, hverju þurfi þó að breyta, hvernig hlusta þurfi á þá sem nota sér þjónustu Reykjavíkur en líka tala borgina upp, enda sér hún stórkostleg þrátt fyrir að síbylja úrtölufólks og fjölmiðla sem haldi öðru fram skelli sífellt á íbúum hennar. Það sé stór munur á hvernig borg Samfylkingin vilji byggja, hvernig framtíð hennar lítur út í hugum Samfylkingarfólks og hvernig aðrir flokkar sjá þá þróun fyrir sér.

Pétri líst afar vel á niðurstöður flokksvalsins og þann hóp sem valinn hefur verið til verka. „Við verðum með 10-15 manna geggjaðan hóp farandi inn í vorið. Við munum bæði skerpa á áherslum og kynna borgarbúum fyrir sýn sem er jafnaðarmannasýnin sem við verðum að halda í heiðri, en líka vera með eitthvað óvænt útspil sem mun koma fólki á óvart.“

Það sé fjarri lagi að einn maður vinni kosningarnar í maí. „Við erum ótrúlega sterkur hópur, Breiðfylking. Við erum stærsti stjórnmálaflokkur á landinu. Þannig að það eru spennandi tímar fram undan. Ég hlakka ekkert smá til og ég held að við stöndum uppi sem sigurvegarar eftir kosningarnar í vor.“

Hægt er að hlusta á allt viðtalið við Pétur í nýjasta þætti hlaðvarps Kratans:

, ,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading