Munurinn á stjórn okkar og sjálfstæðismanna að við rekum bæjarsjóð í plús

Reykjanesbær er samfélag sem hefur verið í örum vexti undanfarin ár. Guðný Birna Guðmundsdóttir hefur verið bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar frá árinu 2014, allan tímann í meirihluta.

Hún leiðir nú lista Samfylkingar til kosninga í fyrsta sinn, eftir að hafa tekið við sem oddviti og forseti bæjarstjórnar þegar Friðjón Einarsson sagði skilið við sveitarstjórnarmálin í lok árs 2023. Hún ræddi við Kratann í hlaðvarpi vikunnar og sagði frá framboði Samfylkingar, sem kynnti sigurstranglegan lista í lok janúar, stöðu mála í bænum og sínum ferli í sveitarstjórninni.

„Þetta er búið að vera ótrúlega skrítið. Ef ég ætti að skrifa bók um þetta væri hún mjög fyndin,“ segir Guðný Birna, um feril sinn í bæjarstjórn, enda var rekstur Reykjanesbæjar á mjög erfiðum stað þegar hún steig inn í bæjarmálin eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hafði haft hreinan meirihluta í bænum um langt skeið. Bærinn var gríðarlega skuldsettur og Guðný Birna lýsir því að þau sem tóku við keflinu í meirihlutanum árið 2014 hafi bara lent beint í nauðvörn.

Endurreisn Reykjanesbæjar undir stjórn S-lista og samstarfsaðila í þremur meirihlutum frá 2014 hefur hins vegar gengið vel og vöxtur samfélagsins verið mikill.

„Við tókum þetta alla leið og höfum verið að halda vel á fjármálunum síðan, þó að þið kannski heyrið annað,“ segir Guðný Birna og vísar þar væntanlega til tals fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um rekstur Reykjanesbæjar.

„Það er vert að nefna það að þessi 12 ár sem sjálfstæðismenn voru í meirihluta í Reykjanesbæ skiluðu þeir einu ári í plús en 11 árum í mínus. Svo tökum við við árið 2014 og jú, fyrsta árið okkar var í mínus, en síðustu 11 ár hafa höfum við skilað hagnaði. Það er munurinn á stjórn okkar og sjálfstæðismanna,“ segir Guðný Birna.

Mikið fjárfest í stofnunum samfélagsins

Hún bendir á að á sínum tíma hafi skuldahlutfall bæjarins verið hátt, en það fór yfir 270 prósent þegar mest var, en í dag sé skuldahlutfall bæjarins einungis 109 prósent, þrátt fyrir mikla fjárfestingu í innviðum samfélagsins, eins og skólum sem hafi kallað á lántöku á þessu kjörtímabili.

„Við erum að gera heilsusamlegar stofnanir fyrir börnin okkar og ungmennin og starfsfólkið sem þarna alla daga en samhliða því erum við líka að nýta tækifærið og bæta aðgengismál og stækka skólana. Við getum tekið um 150-170 nemendur aukalega í báða skólana. Við höfum gert þetta vel og ég tala þessar framkvæmdir upp,“ segir Guðný Birna.

Hún nefnir einnig að bætt hafi verið í framlög til íþróttamála á liðnum árum og glæsileg ný íþróttahöll Njarðvíkur sé dæmi um það hvernig meirihluti með þátttöku jafnaðarfólks hafi haldið á málum. Framlög til málaflokksins séu nú komin yfir 9 prósent af tekjum sveitarfélagsins, en áfram megi gera betur og bæta þurfi aðstöðu fyrir bæði fótbolta og fimleika í sveitarfélaginu.

Bærinn hefur stækkað mikið frá 2014. Fólksfjölgunin nemur um 10 þúsund manns sem Guðný Birna segir ofsalega gleðilegt, en að því fylgi um leið vaxtarverkir. „Við erum alltaf að plana næsta leikskóla og næsta grunnskóla,“ segir Guðný Birna.

Viðtalið við hana má heyra í síðari hluta nýjasta hlaðvarpsþáttar Kratans, sem er aðgengilegur á öllum hlaðvarpsveitum.

, ,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading