Virkjum starf 60+ um allt land

Í samtali á milli fulltrúa þingflokks og stjórnar 60+ á landsvísu fyrir skemmstu kom upp að á meðal eldra fólks í Samfylkingunni gætti stundum misskilnings, sem fælist í því að ekki væri hægt að vera bæði skráður í eitthvert aðildarfélag Samfylkingarinnar og svo 60+ deildir á sínu svæði.

Hið rétta er að 60+ deildir geta starfað innan allra aðildarfélaga Samfylkingarinnar. Fólk þarf ekki að skrá sig úr sínu aðildarfélagi til að taka þátt í starfi 60+ deilda. Landssamtök 60+ innan Samfylkingarinnar eru svo samtök allra 60+ félaga Samfylkingarinnar á landinu.

Kristín Á. Guðmundsdóttir og Ragnheiður G. Sigurjónsdóttir, stjórnarkonur í 60+ á landsvísu, settu saman eftirfarandi fróðleik og hvatningu til 60+ félaga um starfið.

60+ á landsvísu eru regnhlífasamtök allra 60+ félaga Samfylkingarinnar á landinu

Tilgangur 60+ deilda innan Samfylkingarinnar er að gæta hagsmuna fólks 60 ára og eldri. Starfsemin er vettvangur umræðu um stjórnmál á grundvelli jafnaðarstefnu, jafnréttis og lýðræðis. Einnig að vera þrýstihópur til að veita kjörnum fulltrúum aðhald varðandi málefni aldraðra.

60+ deildirnar eru ekki aðildafélög innan Samfylkingarinnar einsog hin aðildafélögin, t.d. Alþýðuflokkurinn, Þjóðvaki og félag Frjálslyndra Jafnaðarmanna, en formaður 60+ á landsvísu hefur seturétt á fundum framkvæmdastjórnar flokksins og er þar áheyrnarfulltrúi.

Allir félagsmenn í Samfylkingunni eldri en 60 ára eru skráðir í 60+ í sínu aðildafélagi. Deildirnar eru mis virkar og mörg aðildarfélög á landsbyggðinni eru ekki með starfandi 60+ deildir.

60+ í Reykjavík og Hafnarfirði eru mjög öflugar deildir. Þær hittast einu sinni í viku og hafa fasta fundartíma og góða aðstöðu.

Markmiðið er að hittast, spjalla, ræða pólitík, daglega lífið og hvað sé á döfinni. Við fáum til okkar kjörna fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum, aðila úr verkalýðshreyfingunum, háskólasamfélaginu og hina ýmsu fyrirlesara.

Mikilvægt er að hvetja félög innan annarra aðildarfélaga á landsbyggðinni að efla starfsemi 60+. Það gæti verið til hagsbóta fyrir félögin. Vert er að hafa í huga að hafa fasta fundaraðstöðu og fundartíma svo félagsmenn viti ávallt hvert þeir eigi að fara.

Það skiptir ekki megin máli hversu margir koma á fundina, heldur er festa í félagsstarfinu lykilatriði. Að nýir og gamlir flokksfélagar vita að þeir geta alltaf nálgast flokkinn ákveðnum tíma, á ákveðnum stað.

Ef eitthvað aðildafélag hefur áhuga á því að stofna deild 60+ innan síns félags erum við í 60+á landsvísu tilbúin að koma í heimsókn, halda fundi með ykkur og deila reynslu okkar og þekkingu.

Hægt er að hafa samband við Kristínu Á. Guðmundsdóttur (sími 869-8330) eða Ragnheiði G. Sigurjónsdóttur (sími 899-4927) til að ræða þessi mál betur.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading