Samfylkingin í Reykjanesbæ kynnti framboðslista á fjölmennum fundi á þriðjudagskvöld. Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar og ritari Samfylkingarinnar, verður áfram oddviti listans. Samfylkingin hefur verið leiðandi afl í bæjarstjórn Reykjanesbæjar á þessu kjörtímabili og stefnir á að vera það áfram.
Listinn fyrir vorið, sem byggir á vandaðri vinnu uppstillingarnefndar, gefur góða möguleika á því. Dagmar Lóa Hilmarsdóttir, formaður uppstillingarnefndar, sagði frá því á fundinum að áhuginn á þátttöku hefði verið mikill og að fjöldi fólks hefði lýst yfir vilja til að taka sæti á lista.
Framboðslistinn er því samansettur af fólki með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu, á breiðu aldursbili, með góðri blöndu af nýjum einstaklingum ásamt reynslumeiri í málefnum bæjarstjórnar.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var viðstödd fundinn í Reykjanesbæ og las upp tillögu uppstillingarnefndar. Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingar í Suðurkjördæmi flutti einnig ávarp á fundinum.
Samfylkingin hlaut 22,11% atkvæða í kosningunum í Reykjanesbæ árið 2022 og þrjá bæjarfulltrúa kjörna. Á kjörtímabilinu hefur Samfylkingin myndað meirihluta með Framsóknarflokknum og Beinni leið.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ:
- sæti – Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og ritari Samfylkingar.
- sæti – Hjörtur Magnús Guðbjartsson, kerfisstjóri.
- sæti – Aðalheiður Hilmarsdóttir, atvinnu- og virkniráðgjafi hjá Reykjavíkurborg.
- sæti – Bjarni Halldór Heiðuson, stjórnmálafræðingur.
- sæti – Hámundur Örn Helgason, framkvæmdastjóri UMFN.
- sæti – Sigurrós Antonsdóttir, bæjarfulltrúi og lögreglumaður.
- sæti – Eysteinn Eyjólfsson, samskiptastjóri VIRK.
- sæti – Hildur Björnsdóttir, lýðheilsufræðingur og kennari.
- sæti – Magnús Einþór Áskelsson, þroskaþjálfi.
- sæti – Elfa Hrund Guttormsdóttir, félagsráðgjafi og flugþjónn.
- sæti – Hjálmar Kári Smárason, verkefnastjóri og markaðsstjóri.
- sæti – Vala Ósk Ólafsdóttir, félagsráðgjafi í barnavernd.
- sæti – Hlynur Snær Vilhjálmsson, háseti.
- sæti – Erna María Jensdóttir, ráðgjafi.
- sæti – Styrmir Gauti Fjeldsted, vöruhúsastjóri.
- sæti – Tinna Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi.
- sæti – Stefán Páll Halldórsson, tryggingarráðgjafi.
- sæti – Auður Sigurðardóttir, aðstoðardeildarstjóri.
- sæti – Borgar Lúðvík Jónsson, formaður Öldungaráðs Reykjanesbæjar.
- sæti – Borgar Unnbjörn Ólafsson, fyrrum vélstjóri og varamaður í stjórn Félags eldri borgara.
- sæti – Sveindís Valdimarsdóttir, fyrrum bæjarfulltrúi og nemi í grasalækningum.
- sæti – Friðjón Einarsson, fyrrum bæjarfulltrúi og ráðgjafi.
