Fyrri síðustu viku á þingi var undirlagður umræðu um tillögu innviðaráðherra um samgönguáætlun til næstu 15 ára. Umræðan fór vel fram og samkomulag náðist milli flokka á þriðjudag um að hleypa málinu til umhverfis- og samgöngunefndar, enda ljóst að mikil vinna er framundan hjá nefndinni við að fara yfir umsagnir sem berast munu um málið og ræða við þá fjölmörgu aðila sem samgönguáætlunin snertir.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingar var á meðal þeirra sem tóku til máls í umræðunni. Hún lagði í ræðu sinni áherslu á að með þessari samgönguáætlun er viðhaldi forgangsraðað, til að hægt sé að fara að taka á þeirri viðhaldsskuld sem safnast hefur upp í vegakerfinu.
Í ræðu sinni benti hún á að verið er að auka framlög til viðhalds verulega, en þau hafa verið um 12-13 milljarðar króna á síðustu árum. Ríkisstjórnin setti strax þrjá milljarða til viðbótar í viðhald vega í fyrra og áformað er að laga vegina fyrir 17,5 milljarða á þessu ári og svo setja 20 milljarða í viðhald árið 2027 og árin þar á eftir.
„Nýframkvæmdir eru vissulega margar og mikilvægar í áætluninni en forgangsröðun á fjármagni verður að sjálfsögðu að vera þannig að við byrjum á að laga þakið sem lekur áður en við förum að byggja upp við húsið. Þótt nýbyggingar séu skemmtilegri og áþreifanlegri en uppgert þak þá er það engu að síður skynsamleg og rétt ráðstöfun á almannafé,“ sagði Ása Berglind í ræðu sinni.
Hún benti svo á hvað þetta þýðir, í beinhörðum endurbótum á vegum, og sagði frá því að síðustu ár hefði Vegagerðin einungis haft fjármagn til að leggja um 300 kílómetra af bundnu slitlagi og styrkja burðarlög á um 30 kílómetra kafla ár hvert.
„[N]ú skilst mér að hægt verði að leggja yfir 400 km af bundnu slitlagi og styrkja burðarlag á um 70–80 km kafla á ári. Þetta skiptir miklu máli og fólk mun finna fyrir þessu,“ sagði Ása Berglind í ræðu sinni, sem lesa má í heild hér.
Veggjöld gagnrýnd af fólki sem hefur lagt til veggjöld
Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður var einnig á meðal þeirra sem tóku til máls um samgönguáætlun, en hann benti á að það væri ekki alveg saman hljóð og mynd í málflutningi Miðflokksmanna, sem gagnrýnt höfðu að það ætti að innheimta gjöld fyrir akstur um ný umferðarmannvirki eins og Sundabraut og fleiri.
Þetta kölluðu Miðflokksmennirnir Þorgrímur Sigmundsson og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir „skattahækkanir“.
Guðmundur Ari benti á að þessir þingmenn væru á meðal flutningsmanna í lagafrumvarpi frá stjórnarandstöðunni sem snýst um að stofna innviðafélagið Þjóðbraut.
„Þar er gengið talsvert lengra í innheimtu veggjalda heldur en gert er í þessari samgönguáætlun og hreinlega kallað eftir því að farið verði að innheimta veggjöld í öllum núverandi jarðgöngum á Íslandi,“ benti Guðmundur Ari á.
