Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands 60+ í Samfylkingunni skrifar:
Samfylkingin hefur í samþykktri stefnu sinni lagt áherslu á að velferðarþjónusta eigi að vera aðgengileg og byggð á þörfum fólksins sjálfs. Fyrir fólk 60 ára og eldra skiptir þetta sérstaklega miklu máli, enda er algengt að sama manneskja þurfi bæði heilbrigðisþjónustu og félagslegan stuðning – og oft á sama tíma. Þjónusta við fólk 60+ á ekki að ráðast af búsetu.
Reynslan sýnir að þegar þjónustan er sundurleit, flókin og dreifð á marga aðila verður hún bæði erfiðari í aðgengi og ómarkvissari. Þá endar það of oft á fólkinu sjálfu og aðstandendum þess að finna út úr kerfinu, sækja upplýsingar og fylgja málum eftir. Slíkt getur aukið álag, óöryggi og tafið að fólk fái þá þjónustu sem það þarf.
Á undanförnum misserum hafa verið þróaðar leiðir til að bæta samhæfingu þjónustu við eldra fólk, þar sem félags- og heilbrigðisþjónusta vinna betur saman. Samfylkingin telur mikilvægt að læra af slíkri vinnu og horfa til þess hvernig hægt er að þróa þjónustuna áfram þannig að hún verði einfaldari, samfelldari og skýrari fyrir notendur.
Sveitarfélög gegna hér lykilhlutverki. Þau bera ábyrgð á fjölmörgum þáttum þjónustu við eldra fólk, á sama tíma og heilbrigðisþjónustan er að stórum hluta á ábyrgð ríkisins. Það kallar á samstarf, samráð og sameiginlega sýn – ekki aðeins innan hvers kerfis fyrir sig, heldur einnig á milli þeirra.
Samfylkingin vill að samþætt þjónusta verði markmið sem sveitarfélög stefna að, í samstarfi við ríkið, með það að leiðarljósi að þjónustan sé aðgengileg og samfelld. Hér er ekki verið að boða eina lausn fyrir öll sveitarfélög, heldur að undirstrika viðmið: að fólk eigi ekki að þurfa að glíma við kerfi sem tala illa saman.
Jafnræði í þjónustu er ekki sjálfgefið. Það byggist á forgangsröðun, skipulagi og ábyrgð. Samfylkingin leggur áherslu á að þjónusta við eldra fólk sé skipulögð þannig að hún styðji við sjálfstæði og öryggi – óháð því hvar fólk býr.
Markmiðið er að eldra fólk geti treyst því að leiðin að þjónustu sé skýr, að upplýsingar séu aðgengilegar og að stuðningur sé veittur með virðingu, samfellu og mannlegri nálgun.
Kristín Á. Guðmundsdóttir
formaður Landsambands 60+ í Samfylkingunni
fyrrverandi formaður Sjúkraliðafélags Íslands
