Í Kratavarpi dagsins er fjallað um það þegar vinstrið gekk í Sönnu Magdalenu, hvernig hægrið í Reykjavík ætlar að klofna í dyggðarskreytingum um hvaða fylking elski malbik og bílastæði mest og hvað þetta þýði allt saman fyrir Pírata sem virðast ekki vita hvort þeir séu vinstri, hægri eða hvorugt. Þá er hvalreki Miðflokksins, sem fól í sér félagaskipti á leikmanni sem komst ekki lengur í hópinn hjá fjórða stærsta flokki landsins, krufinn og farið yfir þá lýðræðisveislu sem stendur yfir í flokksvali Samfylkingarinnar á meðan aðrir flokkar glíma við ofangreind innanmein.
Farið er yfir áhrif hálku og handbolta á pólitík, rætt um hvað sé góð þjóðerniskennd og hvernig hún geti komið í veg fyrir byltingar. Verðbólguumræðan er krufin vitrænt og sett í megrunarlíkingu svo að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af henni á sama hátt og veðrinu. Undir lok venjulegs leiktíma er svo farið í stóru málin og því velt upp hvort ákveðið át á ákveðnum tíma sé eðlileg hegðun eða siðrof.
Í síðari hluta þáttarins kemur Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í sína fyrstu heimsókn í Kratavarpið og ræðir menntamál af innihaldi, yfirvegun og hluttekningu.
