Eðalkratinn skrifar um bandorma og sullaveiki

Bandormur er tegund sníkjudýrs sem lifir yfirleitt í meltingarvegi dýra, þar á meðal manna. Hann smitast helst með óhreinu vatni, illa meðhöndluðum mat eða skorti á almennu hreinlæti og getur borist milli manna og dýra. Líkami bandorma skiptist í marga liði og í hverjum lið geta myndast egg. Þegar liðirnir eru fullþroskaðir losna þeir frá ormunum og berast út í umhverfið með saur hýsilsins. Eggin geta síðan borist í millihýsil, til dæmis svín eða nautgripi, þar sem þau þroskast í lirfur sem setjast í vöðvavef. Endanlegur hýsill getur smitast þegar hann neytir illa eldaðs kjöts sem inniheldur lirfur sem þá þroskast í fullorðinn bandorm í meltingarveginum.

Með þessum hætti „smýgur“ bandormurinn inn í nýjan hýsil, festir þar rætur og dreifir sér áfram. Bandormar hafa verulega neikvæð áhrif á hýsil sinn, þar sem þeir draga til sín næringu, veikja líkamann og geta í alvarlegum tilvikum valdið dauða.

Bandormurinn

Hugtakið bandormur er þó ekki aðeins notað í líffræðilegri merkingu, heldur einnig uppnefni ákveðinna tegunda lagafrumvarpa í pólitískri umræðu. Þar vísar það til svokallaðs lagabandorms, frumvarps sem smýgur inn í fjölda laga í einu, oft samhliða fjárlögum. Slík frumvörp taka til margra ólíkra lagabreytinga, einkum þeirra sem varða tekjustofna ríkisins, hvort sem um er að ræða hækkanir eða lækkanir, framlengingu heimilda eða afnám þeirra.

Líkt og líffræðilegi bandormurinn festir lagabandormurinn sig víða, teygir sig inn í ólík kerfi og nýtir þau til að viðhalda sjálfum sér. En rétt eins og maður talar ekkert mikið um njálginn sinn, heldur fer út í apótek og nær í viðeigandi lyf, þá er vanalega ekki mikið rætt um sjálfan Bandorminn.

Tólf ára þagnarbindindi rofið

Mörg eru metin sem nýkrýnd stjórnarandstaða hefur náð að skreyta sig með. Lengsta umræða um EFTA fríverslunarsamning, formsatriði sem vanalega rennur í gegn. Lengsta málþóf Íslandssögunnar, um veiðigjöldin, í tæpar 160 klukkustundir, sem slagar upp í nærri sjö sólarhringa. Einnig má nefna fjölda blaðsíðna í nefndaráliti við fjárlög, eða 93 blaðsíður sem hefði tekið duglegan prófarkalesara um 31 klukkustund í yfirlestri og uppsetningu, ef miðað er við að hver blaðsíða taki 20 mínútur. Þetta er hvorki ókeypis né ódýrt fyrir sameiginlegan rekstur okkar á Alþingi Íslendinga. Jafnvel hægt að segja að það sé slæm nýting á almannafé.

Það er mikið fagnaðarefni að þagnarbindindi fyrrum stjórnarþingmanna hefur verið rofið. Það hefur væntanlega ekki verið auðvelt að þegja í tólf ár, enda hefur greinilega margt verið vansagt á þeim tíma meðal þáverandi stjórnarliða.

Sullaveiki

Sullaveiki er tegund bandorms sem var landlægur hér á landi fyrr á öldum. Með bættri þekkingu, auknu hreinlæti og markvissri notkun ormalyfja fyrir bæði menn og dýr tókst að útrýma sjúkdómnum.

Í ljósi þess veltir Kratinn því fyrir sér, með ákveðinni kaldhæðni, hvort ekki væri við hæfi að nefna málþóf í kringum lagabandorma sullaveiki: Sjúkdóm sem samfélagið þarf að læra hvernig eigi að losa sig við með því að nýta þekkingu og reynslu annarra þjóðþinga.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading