Líflegar umræður spunnust um erfðafjárskatt þegar verið var að afgreiða fjárlagabandorminn á Alþingi í liðinni viku. Meðal annars lýstu einstaka þingmenn, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, því yfir að þau teldu rétt að afnema erfðafjárskatt með öllu. Einn þingmaður Miðflokksins, sem sér fram á að erfa stóreignafólk, sagðist í ræðu telja að nú væri kominn meirihluti á þingi fyrir afnámi erfðafjárskattsins.
Skemmst er frá því að segja að fyrir þessu er ekki mikil stemning í þingflokki jafnaðarmanna, enda er það útbreidd skoðun í þingflokknum að erfðafjárskattar séu í grunninn góðir og sanngjarnir skattar.
Hægt er að útfæra slíka skatta með ýmsum hætti, en erfðafjárskattur á Íslandi hefur um nokkurn tíma verið flatur 10% skattur sem erfingjar þurfa að greiða af öllum fjárverðmætum yfir sem koma í þeirra hlut við skipti dánarbús eða við fyrirframgreiðslu arfs. Þegar um dánarbú er að ræða eru ákveðin skattleysismörk, sem eru vísitölutengd og nema um 6,5 milljónum króna á árinu sem er að ljúka.
„Hvort tveggja skynsamlegt og sjálfsagt“
Kratinn bað valda þingmenn Samfylkingarinnar um að fara yfir það af hverju þau teldu erfðafjárskatta góða. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Suðvesturkjördæmis og forseti Alþingis, segir að henni hafi verið að tæmast arfur úr dánarbúi foreldra sinna og af því hafi hún greitt ákveðna prósentu í skatt.
„Það er hvort tveggja skynsamlegt og sjálfsagt,“ segir Þórunn. „Eina ástæðan fyrir því að ég fæ arfinn er að ég fæddist inn í þessa fjölskyldu en ekki einhverja aðra. Ég gerði ekkert til að afla teknanna sem foreldrar mínir öfluðu á lífsleiðinni og nýttu m.a. til að tryggja mér og systrum mínum húsnæðisöryggi og sjá okkur farborða. Það er varla hægt að hugsa sér réttlátari skattlagningu en erfðafjárskatt,“ segir Þórunn við Kratann.
„Okkar vakt „að jafna tækifæri fólks“
Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Reykvíkinga tekur í svipaðan streng og Þórunn. „Á sama hátt og það eru forréttindi að eftirláta fólkinu sínu arf, fylgja því skyldur að erfa,“ segir hún og bætir við:
„Sanngjarn erfðafjárskattur stuðlar að lykilmarkmiði okkar jafnaðarmanna – að jafna tækifæri fólks án tillits til þess hvaða manna þú ert. Það er okkar vakt!“
Er skynsamlegt að mikill auður færist milli kynslóða?
Dagur B. Eggertsson þingmaður Reykvíkinga telur erfðafjárskatta bæði réttláta og skynsamlega. Hann segir að rannsóknir og skrif franska hagfræðingsins Thomas Pikettys hafi opnað augu sín fyrir umræðu um þessa tegund skatta í auknum mæli.
Vert er að taka fram að Piketty hefur talað fyrir ansi ólíkum erfðafjárskatti en þeim flata skatti sem við erum með á Íslandi í dag. Piketty telur að erfðafjárskattar ættu að fara stigvaxandi, með háum skattleysismörkum fyrir litlar og meðalstórar erfðir en svo mjög háum sköttum á stórar erfðir, þar sem um er að ræða mikla eignatilfærslu á milli kynslóða.
Piketty hefur varpað ljósi á að erfðir gegni sífellt stærra hlutverki í myndun auðs í þróuðum hagkerfum, þannig að auður safnist í ríkari mæli upp hjá þeim sem erfa eignir fremur en þeim sem afla tekna með vinnu sinni. Afleiðingin af þessu verður sú að félagsleg staða og efnahagslegt vald ræðst fremur af ættum fólks en framlagi hvers og eins.
Erfðafjárskattar beinast þannig að auðsöfnun sem ekki byggir á vinnuframlagi eða nýsköpun einstaklinga, heldur tilfærslu eigna á milli kynslóða. Í huga Pikettys – og eflaust margra annarra – eru erfðafjárskattar því siðferðilega réttlætanlegri en margar aðrar tegundir skatta – þar eð þeir leggjast á forréttindi fremur en afrakstur vinnu.
