Ofurskattinum lyft af heimilum landsins

Á síðasta kjörtímabili, þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna sat að völdum, jukust vaxtagjöld heimilanna úr 19,8 milljörðum króna á á þriðja ársfjórðungi 2021 í 44,4 milljarða króna á síðasta ársfjórðungi ársins 2024. Glöggir lesendur sjá fljótt að þetta þýðir að vaxtakostnaðurinn rúmlega tvöfaldaðist, nánar tiltekið um 124 prósent. Önnur leið til að líta á þetta er að heimili landsins greiddu 14,6 milljörðum króna meira í vexti síðustu þrjá mánuði síðasta árs en þau gerðu á þriggja mánaða tímabili haustið 2021.

Ástæðan blasir við. Óstjórn í efnahagsmálum, sem fól í sér viðvarandi hallarekstur ríkissjóðs til að fjármagna tilfærslur úr ríkissjóði og ófjármagnaðar skattalækkanir til breiðustu bakanna í samfélaginu, skiluðu verðbólgunni um tíma í tveggja stafa tölu og gerði það að verkum að Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti í 9,25 prósent. Þessi efnahagsstjórn lagði ofurskatt á þá sem skulda, sérstaklega barnafjölskyldur.

Það sem af er þessu kjörtímabili hefur aukning á vaxtakostnaði heimila stöðvast. Samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni er hann meira og minna sá sami í krónum talið og hann var þegar stjórnarskipti urðu fyrir ári, þrátt fyrir að kaupmáttur hafi aukist myndarlega, verðlag hækkað og landsmönnum fjölgað.

Ástæða þessa er ábyrg stjórn efnahagsmála eftir að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum. Afleiðingar hennar eru reglulegar vaxtalækkanir sem hafa skilað stýrivöxtum niður í 7,25 prósent og greiningaraðilar eru með væntingar um frekari lækkanir á næstu mánuðum. Fyrir venjulega fjölskyldu með 40 milljóna króna óverðtryggt húsnæðislán þýðir þetta um 60 þúsund krónur í auknar ráðstöfunartekjur á mánuði. Það munar um þá ofurskattalækkun.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading