Þingsályktunartillaga um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 var kynnt af innviðaráðherra í vikunni og hefur verið útbýtt á Alþingi. Samgönguáætlunin markar tímamót, en með henni er ráðgert að stórauka framlög til viðhalds og þjónustu vega, um 7 milljarða á ári, til þess að taka á innviðaskuldinni sem hefur safnast upp í vegakerfinu undanfarna áratugi.
Hún er einnig fjármögnuð, ólíkt fyrri áætlun, sem fól í sér jarðgangaáætlun sem hefur ekki tekist að koma í framkvæmd. Það hefur leitt af sér þá dapurlegu staðreynd að ekki hefur verið hafist handa við nein jarðgöng á Íslandi síðan byrjað var á Dýrafjarðargöngum, sem opnuðu árið 2020.
Eftir mikla yfirlegu varð niðurstaðan sú að ekki væri fjárhagslega forsvaranlegt að hefja gerð Fjarðarheiðarganga, sem hafa verið tilbúin til útboðs um nokkurt skeið. Samgönguáætlunin felur því í sér breytta forgangsröðun jarðganga og að hafist verði handa við að bora Fljótagöng árið 2027, en fara því næst í Fjarðagöng og Súðavíkurgöng og þá göng undir Mikladal og Hálfdán.
Ný forgangsröðun jarðganga
• 1. Fljótagöng
• 2.-3. Fjarðagöng (Seyðisfjarðar- og Mjóafjarðargöng)
• 2.-3. Súðavíkurgöng
• 4. Miklidalur og Hálfdán (tvenn göng)
Til viðbótar við þessi fjögur verkefni er fjárveiting í samgönguáætluninni til undirbúnings og rannsókna á einu verkefni til viðbótar, þannig að alls er stefnt að undirbúningi sjö jarðganga í fimm aðskildum verkefnum á 15 ára tímabili samgönguáætlunar.
Innviðafélag um stórframkvæmdir
Við sama tækifæri og samgönguáætlun var kynnt var einnig sagt frá samkomulagi um stofnun nýs innviðafélags utan um stórframkvæmdir, sem þýðir að hægt verður að koma stórframkvæmdum af stað. Frumvarp um stofnun félagsins verður lagt fram á vorþingi.
Innviðafélagið verður sjálfstætt félag og verður að fullu í eigu ríkisins. Félagið mun geta tekið að sér fjármögnun og eignarhald samgöngumannvirkja á grundvelli samnings við stjórnvöld. Þannig er stefnt að því að tryggja samfellu og aukinn fyrirsjáanleika í útgjöldum ríkisins til stærri samgönguframkvæmda, svo sem til jarðgangagerðar.
Gert er ráð fyrir því að fyrstu verkefni innviðafélagsins verði Ölfusárbrú, Sundabraut og Fljótagöng.
Kraftur í framkvæmdir um allt land
Samkvæmt samgönguáætluninni eru ýmis brýn verkefni að fara að raungerast á næstu árum. Á Vestfjörðum á meðal annars ljúka við Vestfjarðaveg um Gufudalssveit og Dynjandisheiði árið 2027 og í kjölfarið á því að fara í Bíldudalsveg um Trostansfjörð.
Fyrir austan á að ljúka við lagfæringar á hringveginum í botni Reyðarfjarðar og tvær nýjar brýr á árinu 2028 og setja framkvæmdir við Djúpavog og brú yfir Búlandsá af stað á sama tíma. Framkvæmdir við heilsársveg yfir Öxi eiga að hefjast árið 2027.
Fyrir norðan á, auk þess sem Fljótagöng eru sett í forgang sökum öryggisástæðna, að ljúka við endurgerð Norðausturvegar um Skjálfandafljót á árinu 2029. Í kjölfarið hefjast framkvæmdir við brýr yfir Skjálfandafljót og Jökulsá á Fjöllum. Umfangsmiklar framkvæmdir eiga einnig að hefjast við Vatnsnesveg árið 2027.
Á Suðurlandinu er horft er til þess að ljúka við nýja Ölfusárbrú árið 2028 og í kjölfarið verður farið í að færa hringveginn við Hveragerði, svo bærinn geti stækkað án þess að hringvegurinn slíti hann í sundur.
Á höfuðborgarsvæðinu er svo ráðgert að framkvæmdir við Sundabraut hefjist á árinu 2027 og ljúki árið 2032, auk þess sem framkvæmdum við 2+1 veg á Kjalarnesi ljúki árið 2029. Áfram verður svo lagður kraftur í verkefni samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, Borgarlínu, stofnvegi og hjólastíga.
