Síðustu árin hefur fátt farið jafn mikið í taugarnar á Sjálfstæðisflokknum og Píratar og þeirra þinglegu leikir. Það er því kómískt að fylgjast með Sjálfstæðisflokknum týna sér í handbók Pírata um tafarleiki, málþóf, atkvæðaskýringar og nú síðast ofurviðkvæmni vegna pirrings í þingsal og yfirgengilegra hótana um beitingu siðareglna.
Þetta, ásamt samgönguáætlun, kílómetragjaldinu, beitingu 71. greinar og fjárlaga sem tryggja áframhaldandi sleggjuáhrif á vexti og verðbólgu á sama tíma og hægt er að bæta velferð er til umfjöllunar í hlaðvarpi Kratans þessa vikuna. Þar er líka rætt um þráhyggju, og dauðhræðslu, harðra hægrihlaðvarpa við það að til sé vettvangur jafnaðarfólks í hlaðvarpsheimum og hvernig Kratinn nýtist sem melantónín á það hólf stjórnmálanna. Ef þið viljið svæfa hægrimann, látið hann hlusta á upplýsta, hressa og staðreyndamiðaða umræðu í stað eineltis-innrætingarinnar og uppnefninga-meistaramótanna sem þeir eru vanir að fá í æð í kampavínshlaðvörpunum.
Svo kemur forseti Ungs jafnaðarfólks, Jóhannes Óli Sveinsson eða Jóli, í seinni hluta þáttar og ræðir forprófkjör Hallveigar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar sem er ætlað að tryggja að fólk undir 35 ára aldri verði í næsta borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar.
Hlustið á Kratann ykkar hér að neðan og deilið sem víðast. Það vantar nefnilega jafnaðarfólksmótefni í ansi marga með tímabundna hægri-veiki.
