- Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ekki verið að tvínóna við hlutina á þessu fyrsta starfsári. Það fyrsta sem má þakka fyrir er að hún hafi verið mynduð. Þjóðin kaus breytingar og fékk breytingar.
- Ríkisstjórnin hefur einbeitt sér að því að vinna fyrir almannahagsmuni, ekki sérhagsmuni. Hún er ríkisstjórn allra, ekki bara sumra. Þetta sást vel í vor þegar málþóf hófst vegna veiðigjaldaumræðu. Stjórnarliðar létu ekki deigan síga og lengdu þing fram á sumar til þess að ná fram breytingum á veiðigjöldum og nú fær almenningur sanngjarnari gjöld fyrir nýtingu á auðlind í sinni eigu.
- Hér er fullorðið fólk komið við stýrið á efnahagsstjórninni. Lykiláherslan er á jafnvægi. Að bæta við þar sem þarf að bæta við Ríkisstjórnin lagði fram nýja fjármálaáætlun þar sem stöðugleikareglan var kynnt til leiks. Stefnt er að hallalausum fjárlögum 2027, verðbólgan hefur ekki verið lægri í fimm ár og stýrivextir hafa lækkað fimm sinnum um alls 1,75 prósent síðan að boðað var til kosninga í fyrra. Þetta skiptir venjulegt vinnandi fólk gríðarlegu máli og sparar því tugi þúsunda króna á mánuði í vaxtagreiðslur.
- Kyrrstaða hefur verið rofin og innviðaskuldin er á hraðri niðurleið. Nýjasta útspilið þar er samgönguáætlun sem er að fullu fjármögnuð og stofnun innviðafélags. Auk þess er unnið að atvinnustefnu til næstu tíu ára þar sem áherslan er á aukna framleiðni, vel launuð störf úti um allt land og að fjölga stoðunum undir efnahagskerfinu.
- Tiltekt er í gangi í allri stjórnsýslunni með það fyrir augum að nýting á fjármunum almennings sé sem skynsamlegust. Það er verið að forgangsraða í nánast öllum málaflokkum. Í henni hafa heilbrigðismálið til að mynda verið sett á oddinn, fjármagn í geðheilbrigðismál, endurhæfingu og meðferðarúrræði hefur verið stóraukið og risavaxið átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila er hafið um allt land. Annað sem má nefna er að það hafa verið kynnt ný og raunhæf losunarmarkmið í loftslagsmálum.
- Heimili eru mannréttindi ekki forréttindi. Eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar er að laga stöðuna á húsnæðismarkaði. Nú er búið að rúlla út fyrsta húsnæðispakkanum sem felur í sér aukin tækifæri fólks til að eignast heimili, að íbúðir séu skilgreindar sem heimili ekki fjárfestingavara og að ráðist verði í stórtæka uppbyggingu þúsunda íbúða í Úlfarsárdal, svo fátt eitt sé nefnt. Næsti húsnæðispakki verður svo kynntur fljótlega eftir áramót. Það er skýrt að ríkisstjórnin ætlar að laga þessa stöðu. Ef það þarf að gera meira, þá gerir hún meira.
