30 ár síðan að ríkisstjórn mældist með jafn mikinn stuðning ári eftir kosningar

Samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallup þá segjast rúmlega 31 prósent landsmanna að þeir myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði í dag. Það er rúmum tíu prósentum meira fylgi en við fengum í kosningunum fyrir ári síðan og það myndi skila okkur 22 þingmönnum, eða sjö fleiri en við erum með í dag. Ríkisstjórnin sem Samfylkingin myndaði með Viðreisn og Flokki fólksins stendur líka styrkum fótum og mælist áfram sem áður með öflugan meirihluta þingmanna, eða 34 á móti 29.

Stuðningurinn við ríkisstjórnina mælist líka gríðarlegur, um 59 prósent, og hefur haldist á þeim slóðum meira og minna allt kjörtímabilið til þessa. Það þarf að leita aftur til ársins 1995 til að finna nýja ríkisstjórn sem hefur notið viðlíka stuðnings eftir eitt ár við stjórnvölinn. Raunar hafa allar stjórnirnar sem sátu frá 2007, að Jóhönnustjórninni undanskilinni, misst stuðning við sig vel fyrir neðan 50 prósent á fyrsta árinu eftir að þær tóku við.

Sviptingar í hægrinu

Þau tíðindi urðu í nýjasta þjóðarpúlsinum að Miðflokkurinn mælist stærsti hægri flokkur landsins, og mælist auk þess sá næst stærsti. Það er í annað sinn síðan sá flokkur var stofnaður sem hann nær að mælast með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn. Fyrra skiptið var í lok september í fyrra, en þegar talið var upp úr kjörkössunum nokkrum vikum síðar hafði gamli íhaldsflokkurinn náð forystu í hægra hólfinu á nýjan leik.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með næstminnsta fylgi sem hann hefur nokkru sinni mælst með í könnunum Gallup frá upphafi og myndi einungis fá ellefu þingmenn ef kosið væri í dag. Verst er staða hans í Norðausturkjördæmi, kjördæmi varaformannsins Jens Garðars Helgasonar. Þar segjast einungis 10,1 prósent kjósenda styðja flokkinn. Þar er Sjálfstæðisflokkurinn nú fjórði stærsti flokkur landsins.

Staðan er lítið skárri í Reykjavíkurkjördæmi norður, þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson, áhugamaður um mögulegt borgarstjórnarframboð, er oddviti. Í því kjördæmi mælist fylgi Sjálfstæðisflokks 14,7 prósent. Til samanburðar segjast 38,1 prósent íbúa þess styðja Samfylkinguna.

Samfylkingin er áfram sem áður stærsti flokkurinn í öllum aldurshópum, hjá öllum menntahópum, öllum tekjubilum og í báðum kynjum. Við erum líka að mælast með mest fylgi í öllum kjördæmum nema Suðurkjördæmi og erum langstærsti flokkurinn á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading