„Ég er stoltur af fyrstu fjárlögum nýrrar ríkisstjórnar. Ísland er að rísa upp eftir sögulegt tímabil hallareksturs, verðbólgu, hárra stýrivaxta og uppsafnaðrar innviðaskuldar. Ný ríkisstjórn hefur tekið á þessum áskorunum af festu.“ Svona hófst ræða Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, um fjárlög á Alþingi í gær.
Hann benti á að hallarekstur ríkissjóðs hafi helmingaður milli ára og á næsta ári verði lögð fram hallalaus fjárlög í fyrsta sinn í mörg ár. „Verðbólga hefur ekki verið lægri í fimm ár og einu ári eftir að boðað var til kosninga hafa stýrivextir verið lækkaðir fimm sinnum. Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað með sölu á Íslandsbanka og uppgjöri á ÍL-sjóði.“
Með tiltekt í ríkisrekstri, sanngjarnari auðlindagjöldum og aukinni verðmætasköpun sé svigrúm skapað fyrir fjárfestingu í grunnþjónustu og innviðum íslensku þjóðarinnar. „Við erum að laga vegina, undirbúa ný göng, fjölga lögregluþjónum og stækka verkmenntaskóla og spítala. Við ætlum að taka utan um fólkið okkar, efla íslenskuna og auka stuðning við íþróttir, forvarnir og meðferðarúrræði. Þessi fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar sýna fram á ábyrga efnahagsstjórn og sterka velferð fyrir íslensku þjóðina.“
