Ríkisstjórnin í stöðugum málum en minnihlutinn tapar þingmanni

Samfylkingin mælist áfram sem áður langstærsti flokkur landsins í nýrri könnun Gallup með 31,9 prósent fylgi. Það myndi að skila flokknum 23 þingmönnum, sem er átta fleiri en hann hefur í dag. Ríkisstjórnarflokkarnir eru mælast auk þess samanlagt með meira fylgi en þeir fengu í síðustu kosningum, halda öllum sínum 36 þingmönnum og stuðningur við hana mælist 61 prósent.

Líkt og í flestum könnunum það sem af er kjörtímabili þá er Samfylkingin stærst í öllum kjördæmum. Mest er fylgið í Reykjavíkurkjördæmunum, um 38 prósent í suðurhlutanum og tæplega 39 prósent í Norðurhlutanum. Flokkurinn mælist líka með yfir 30 prósent fylgi í Kraganum og Norðausturkjördæmi og fjórðungsfylgi í Suður- og Norðvesturkjördæmi.

Samfylkingin er líka stærsta flokkurinn hjá öllum menntunarhópum, öllum aldurshópum, og öllum tekjuhópum. Frá síðustu kosningum hefur flokkurinn bætt við sig 11,1 prósentustigi samkvæmt könnun Gallup og flestir þeirra kjósenda sem segjast nú ætla frekar að setja X við S en eitthvað annað koma frá flokkum sem náðu ekki inn í þeim kosningum. Næstum þriðjungur nýja fylgisins kemur frá fólki sem kaus Sósíalistaflokkinn í fyrra, tæplega 30 prósent eru fyrrverandi kjósendur Pírata  og 25 prósent fyrrverandi kjósendur Vinstri grænna.

Önnur tíðindi í könnuninni eru þau að minnihlutaflokkarnir á þingi mælast nú með nákvæmlega sama fylgi og þeir voru með í kosningunum sem þeir töpuðu fyrir tæpu ári. Það myndi skila þeim einum færri þingmanni en þeir hafa samanlagt núna, eða 26 í stað 27. Sjálfstæðisflokkurinn fékk sína verstu mælingu á kjörtímabilinu og mælist nú með 17,8 prósent fylgi. Framsóknarflokkurinn rétt skríður yfir fimm prósentamúrinn og fengi þrjá þingmenn. Miðflokkurinn mælist með nánast sama fylgi og hann mældist með fyrir nákvæmlega ári síðan og um fjórum prósentustigum meira en flokkurinn fékk í kosningunum 2024.

Þá mælast Píratar inni með einn mann samkvæmt könnun Gallup, í Reykjavík norður, þar sem fylgi þeirra mælist 7,2 prósent, þrátt fyrir að heildarfylgið nái ekki fjórum prósentum. Sá flokkur er í þeim fasa að reyna að kjósa sér formann og varaformann og með því yfirgefa þann flata strúktúr sem einkennt hefur hann frá upphafi. Hvorki Vinstri græn eða Sósíalistaflokkur Íslands eru nálægt því að ná inn á þing samkvæmt nýjustu mælingunni. 

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading