„Fyrir nokkrum vikum kom upp alvarleg bilun í starfsemi Norðuráls á Grundartanga sem varð til þess að tveir þriðju af framleiðslu verksmiðjunnar stöðvuðust. Því miður voru ansi margir í þjóðfélaginu sem ruddust fram á ritvöllinn í kjölfarið og virtust hafa lítinn skilning á því hvað svona alvarleg bilun þýðir fyrir þjóðarbúið og nærsamfélagið.“ Þetta sagði Hannes S. Jónsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, í störfum þingsins í dag.
Í ræðu sinni sagði hann að þær raddir hefðu meira að segja heyrst sem vonuðu að starfsemi Norðuráls yrði bara lokað. „Nokkrum dögum áður en þessi alvarlega bilun Norðuráls kom upp hafði verið tilkynnt um önnur vond tíðindi á svæðinu, að Elkem hefði ákveðið að draga úr framleiðslu í verksmiðju sinni á Grundartanga. Enn þá er óvissa hvenær full framleiðsla hefst aftur hjá Norðuráli. Ég vil hrósa stjórnendum fyrirtækisins fyrir það hvernig haldið hefur verið á málinu undanfarnar vikur sem og starfsfólkinu öllu sem stendur vaktina í þeirri óvissu sem uppi er.“
Hannes sagði að fyrirtækin sem séu með starfsemi á Grundartanga skipti miklu máli fyrir fólkið sem býr á svæðinu. „Þarna hafa hundruð manna vel launuð heilsársstörf og unga fólkið hefur getað fengið aukavinnu með skóla sem og sumarstörf. Umsvifin á Grundartanga skapa svo fjölbreytt afleidd störf í öðrum fyrirtækjum þar sem enn fleiri einstaklingar fá vinnu. Þessi fyrirtæki eru dugleg að styðja við ýmsa starfsemi í nærsamfélagi, íþróttafélögin hafa fengið góðan stuðning og svona mætti áfram telja.“
Það skipti máli fyrir Akranes, Hvalfjarðarsveit, Vesturland og landið allt að atvinnustarfsemi á Grundartanga blómstri í sinni víðustu mynd um ókomin ár ásamt öðrum nýjum verkefnum sem eru í farvatninu á Akranesi og Vesturlandi. „Það hefur því verið gott að heyra að óháð stöðu mála hjá Norðuráli og Elkem hafi ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur verið að fylgjast náið með því sem er að gerast á Grundartanga og verið í þéttu samtali við Þróunarfélag Grundartanga um önnur tækifæri til atvinnuuppbyggingar á svæðinu.“
