Vikan hefur verið viðburðarík innan þings en þó kannski sér í lagi utan. Í dag er kvennaverkfall um allt land, en 50 ár eru liðin frá hinu sögulega kvennaverkfalli 24. október 1975, þegar konur á Íslandi stöðvuðu samfélagið með því að leggja niður launuð sem og ólaunuð störf.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, skrifar á Facebook í dag: „Árangur íslenskrar kvenfrelsisbaráttu byggist á samstöðu kvenna þvert á félög og flokka. Gleymum því ekki þegar við minnumst þessara merku tímamóta.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fjallar einnig um kvennaverkfallið í færslu á Facebook – og segir þar að flestir séu sammála um að þennan dag hafi orðið straumhvörf. Fimm árum síðar hafi Vigdís Finnbogadóttir verið kjörin forseti Íslands, fyrst kvenna í heiminum. Og svo hafi boltinn haldið áfram að rúlla.
„Aukin þátttaka kvenna í íslenskum stjórnmálum færði þjóðinni mikilvæg réttindi. Lengra fæðingarorlof – fyrir foreldra óháð kyni. Leikskólarnir voru byggðir. Og svo mætti lengi telja.
Margt má þó auðvitað gera betur. Kynbundið ofbeldi þarf að uppræta. Og á meðan umönnunarstörf eru ekki metin að verðleikum – sem grunnstoðir samfélagsins – munum við áfram búa við kynbundinn launamun. Þarna þurfa stjórnvöld að vera vakandi.
En í dag getum við staldrað við og verið stolt af því hvað við höfum náð langt. Það megum við þakka konunum sem tóku erfiðar ákvarðanir og stóra slagi. Takk fyrir að ryðja brautina fyrir okkur sem komum á eftir,“ skrifar forsætisráðherra.
Fylgst náið með þróun mála hjá Norðuráli
Á miðvikudag bárust fréttir af því að álver Norðuráls á Grundartanga þyrfti að skerða starfsemina sína verulega vegna alvarlegrar bilunar og að framleiðsla í tveimur þriðju hlutum álversins gæti legið niðri mánuðum saman. Þetta er alvarlegt og óvissan töluverð, ekki síst fyrir starfsfólk fyrirtækisins sem margt býr á Akranesi og nærsveitum og fyrirtæki stór og smá sem þjónusta álverið.
Forsætisráðherra var spurð út í málið í óundirbúnum fyrirspurnum á fimmtudag og sagði meðal annars: „Þetta er grafalvarleg staða hjá Norðuráli. Fólk er enn þá að meta stöðuna. Fólk sem starfar hjá félaginu er enn þá að meta stöðuna og fyrstu viðbrögð okkar í ríkisstjórninni, og held ég alls þingheims, eru auðvitað fyrst og fremst að hugur okkar er hjá starfsfólki Norðuráls í þessari óvissu sem nú þegar er komin upp.“
Einnig kom fram í máli Kristrúnar að búið væri að taka ákvörðun um að setja á fót hóp starfsmanna ráðuneyta sem hefur „gagngert það hlutverk að vera í þéttu sambandi við svæðið og við fyrirtækið til að geta brugðist við þegar við náum utan um hvað raunverulega gekk þarna á“.
