Betri Menntasjóður námsmanna!

Lagabreytingar frá Loga Einarssyni ráðherra háskólamála, sem snúa að Menntasjóði námsmanna, voru samþykktar eftir 3. umræðu á fimmtudag. Breytingarnar auka svigrúm námsmanna til að geta notið námsstyrkja í formi niðurfellingar námslána, sem tengdir eru við námsframvindu.

Áður var það svo að nemendur sem kláruðu nám sitt innan tilsettra tímamarka fengu 30% námslána niðurfelld við námslok, en framvegis verður hægt að fá 20% námsstyrk eftir hverja vel lukkaða önn nemanda og svo 10% að auki ef námsframvindan í náminu í heild er samkvæmt áætlun.

Þetta veitir nemendum, sem kannski lenda í óvæntum atburðum sem kalla á námshlé, kost á að njóta námsstyrkjanna. Áfram verður þó hvati í kerfinu til að ljúka námi innan tilskilinna tímamarka.

Einnig voru samþykktar breytingar sem draga úr sviptingum á vaxtabyrði námslána og rýmka heimildir námsmanna til að greiða bara af einu láni í einu. Skýrsla sem unnin var um Menntasjóðinn leiddi í ljós að þörf væri á þessum breytingum og fleirum, til að sjóðurinn gæti betur staðið undir hlutverki sínu, að jafna tækifæri fólks til náms.

Tekið skal fram að frekari breytingar eru fyrirhugaðar á Menntasjóðnum. Unnið er að heildarendurskoðun á sjóðnum í ráðuneyti Loga, svo hann geti nýst fjölbreyttum hópi stúdenta og samfélaginu öllu betur.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading