Fundur um daglega lífið í Grafarvogi á laugardag

Vinna við áframhaldandi málefnastarf Samfylkingarinnar er komin á fullt, en eins og áður hefur komið fram á þessum vettvangi erum við að drepa á dyr og bjóða til funda um allt land og spyrja hvað við getum gert til að létta líf fólks.

Þá erum við að tala um daglega lífið, bæði litlu málin og þau stóru. Við erum að móta stefnuna í samtali við fólkið í landinu og munum kynna útspil Samfylkingarinnar um daglega lífið í lok vetrar.

Samfylkingarfólk hefur til þessa farið í Sandgerði, Þorlákshöfn og Hafnarfjörð og bankað á dyr og haldið vel sótta og gagnlega fundi í kjölfarið.

Nú er röðin komin að Reykjavík, nánar tiltekið Grafarvogi. Á laugardag verða kjörnir fulltrúar og sjálfboðaliðar á vegum Samfylkingar á ferðinni um hverfi Grafarvogs, banka á dyr og spjalla við íbúa.

Klukkan 15 hefst síðan opinn fundur í Borgarholtsskóla, en þar verða Heiða Björg borgarstjóri, Jóhann Páll ráðherra auk þingmanna og borgarfulltrúa til samtals við gesti.

Sjáumst sem flest!

Hér eru upplýsingar um fundinn á Facebook

Viltu koma með að banka á dyr? Skráðu þig hér

Hvernig getum við létt lífið þitt? Sendu inn tillögur

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading