Hlaðvarp: Kallar eftir alvöru viðurlögum gegn launaþjófnaði

Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, segir brýnt að herða viðurlög vegna vísvitandi brota atvinnurekenda gegn launafólki, svokallaðs launaþjófnaðar. Hann stóð fyrir sérstakri umræðu um þessi mál á þingi 15. október og ræðir málið í hlaðvarpi Kratans þessa vikuna.

Kristján Þórður benti þar á að í dag væru viðurlögin aðeins þau að greiða vangoldin laun aftur í tímann – en það dugir að hans mati ekki til að sporna við launaþjófnaði.

„Ef þú vísvitandi brýtur á fólki, þá þarftu að greiða fyrir það. Og ég held að svona févíti sé bara nauðsynlegt til þess,“ segir Kristján Þórður.

Hann leggur áherslu á að slíkar greiðslur eigi að renna beint til starfsmanna sem orðið hafi fyrir brotum.

Varnarlaust fólk og kerfisbundin misnotkun

Kristján lýsir í samtalinu alvarlegum dæmum um misnotkun á erlendu verkafólki á Íslandi. Þar sé um að ræða fólk sem fái ekki greidd rétt laun, sé látið greiða of háa leigu í húsnæði á vegum vinnuveitanda eða jafnvel látið afhenda vegabréf sitt.

„Þetta er yfirleitt fólk sem er á lægstu laununum eða með lágar tekjur og þar af leiðandi, getur ekki lagt til hliðar og er í raun og veru annars vegar að skrimta mánuði frá mánuði þannig að það er augljóst að þegar að launin síðan berast ekki þá verður staðan alveg gríðarlega erfið,“ segir hann.

Samstaða á Alþingi um að bregðast við

Í sérstöku umræðunni á Alþingi 15. október ríkti víðtæk samstaða um að ekki megi líðast að launafólk verði fyrir slíkum brotum. Félagsmálaráðherra, Inga Sæland, lagði til að haldin yrði vinnustofa um málið með þátttöku allra helstu hagsmunaaðila – Alþingis, verkalýðshreyfingar, eftirlitsaðila, skattayfirvalda og lögreglu.

„Það væri gríðarlega gott að nýta þessa breiðu sátt og kalla alla að borðinu,“ segir Kristján Þórður.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading