Ræða Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur í störfum þingsins 15. október:
„Síðustu vikur hafa tvö mál verið áberandi í umræðunni; skortur á úrræðum fyrir börn í vímuefnaneyslu og slæm staða í fangelsismálum. Í báðum málaflokkum er margumtöluð innviðaskuld átakanleg. Þarna birtast okkur mjög veikir hlekkir í keðjunni sem mótar velferðarkerfið okkar. En hvar byrjar þessi keðja? Erum við að standa okkur nógu vel þegar kemur að því að búa börnum og nýjum foreldrum öruggt umhverfi?
Síðan 2014 hafa Norðmenn verið að prófa sig áfram og rannsaka á sama tíma verkefnið „Sammen på vei“. Fyrirmyndin er 40 ára alþjóðlegt verkefni sem heitir „nurse-family partnership“ sem er til staðar í fjölda landa. Verkefnið er á vegum barnaverndarstofu í Noregi og gengur út á að grípa tilvonandi mæður sem hafa upplifað áföll, alist upp við krefjandi aðstæður eða búa við veikt félagslegt umhverfi. Konum er boðið upp á stuðning á meðgöngu og á fyrstu árum barnsins, á viðkvæmasta mótunarskeiði hvers barns. Konurnar hafa aðgang að fagmanneskju sem þær geta leitað til án hindrana, sem heimsækir líka móðurina aðra hverja viku. Viðkomandi hjálpar mæðrum að takast á við áskoranir sem þær standa frammi fyrir, hvort sem er að ná tökum á fjármálum, svara spurningum um uppeldi og bestu aðferðir við umönnun barnanna sem dæmi. Ég átti nýverið samtal við konu sem nýtti þessa þjónustu og gaf mér leyfi til að vitna í orð sín:
„Það var ómetanleg tilfinning að upplifa að maður væri séður af velferðarkerfinu á viðkvæmum tímamótum í lífinu. Stuðningurinn og eftirfylgnin sem ég fékk fyrstu tvö árin í lífi barnsins míns gaf mér styrkinn og sjálfstraustið sem ég þurfti til að koma í veg fyrir að barnið mitt erfði mín eigin áföll og áföll kynslóðanna á undan mér.“
Við þurfum ekki að finna upp hjólið en við verðum að finna leiðir til að standa betur með foreldrum og búa börnum öruggt umhverfi.“
Hægt er að horfa á ræðuna hér að neðan:
