Gallup birti nýjustu fylgiskönnun sína í vikunni. Þar kom fram að fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 31,8 prósent. Það er mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með í 16 ár og skiptin sem hann hefur mælst svo hátt frá stofnun eru ekki mörg. Ef kosið yrði í dag, og niðurstaðan yrði í samræmi við könnun Gallup, myndi Samfylkingin fá 23 þingmenn, eða átta fleiri en við höfum nú. Til að setja það í samhengi þá var Samfylkingin með sex þingmenn fyrir kosningarnar í lok árs í fyrra.
Staða ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er feikilega sterk miðað við niðurstöðu könnunarinnar. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna þriggja er meira en það var í kosningunum 2024 og þeir myndu fá fleiri þingmenn en þá ef kosið yrði nú. Þá mælist stuðningur við stjórnina 63 prósent. Það er fáheyrt í seinni tíð að ríkisstjórn haldi svona miklum og óskoruðum stuðningi með sama hætti svona mörgum mánuðum eftir að hún tók við völdum, sem sýnir mjög þann meðbyr sem er til staðar hjá þjóðinni.
Samfylkingin mælist nú stærsti flokkur landsins í öllum kjördæmum, hjá öllum aldurshópum, öllum menntunarhópum og öllum tekjuhópum. Það sýnir að Jafnaðarflokkur Íslands er að standa undir nafni og ná jafnt til landsmanna úr öllum stigum samfélagsins. Sannkölluð breiðfylking.
Það sem vekur mesta athygli er að fylgi Samfylkingarinnar hefur vaxið mest á landsbyggðinni, í Norðaustur-, Norðvestur- og Suðurkjördæmi. Þar erum við að bæta við okkur 3,0-5,6 prósentustigum milli kannana. Ástæða þess að þetta er svona athyglisvert er auðvitað sú að veiðigjaldamálinu hefur verið stillt þannig upp að hér sé að takast á landsbyggð og höfuðborg. Könnun Gallup sýnir hins vegar að því meira sem fólk veit um málið, því meiri verður stuðningur við það á landsbyggðinni.
Til að undirstrika þetta þá er vert að benda á að fylgi Samfylkingarinnar mælist nú mest í Norðausturkjördæmi, eða 36,3 prósent. Líkt og sést á myndinni hér að ofan, sem sýnir samanburð á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks (sem mælist næst stærsti flokkur landsins með 11,2 prósentustigum minna fylgi en Samfylking sem myndi skila átta færri þingmönnum en við) þá munar næstum 20 prósentustigum á þessum tveimur flokkum þar.
Þótt fylgið aukist á landsbyggðinni er það þó enn gríðarlega mikið á höfuðborgarsvæðinu, og hefur aukist mikið þar frá kosningum. Í Reykjavíkurkjördæmi norður mælist það til að mynda 35 prósent, sem er rúmlega tvisvar sinnum meira fylgi en næst stærsti flokkurinn þar, Sjálfstæðisflokkur, mælist með.
