Kæru félagar!
Nú líður að þinglokum á fyrsta löggjafarþingi eftir að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum í landinu. Þau hreinu stjórnarskipti sem urðu, og gerðu það að verkum að gömlu valdaflokkarnir Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eru nú í minnihluta, leiddu óumflýjanlega til þess að áherslur við landsstjórnina yrðu allt aðrar en verið hefur.
Verkstjórn valkyrjanna lagði enda fram afar metnaðarfulla þingmálaskrá sem innihélt allskyns umbótamál grundvölluð á almannahagsmunum, sanngirni og réttlæti. Samhentur og öflugur hópur hefur unnið að því öllum stundum að undirbúa málin vel, koma þeim í þinglega meðferð, vinna þau þar þannig að þau geti orðið að lögum og þannig bætt líf landsmanna á margháttaðan máta.
Þrátt fyrir að yfirstandandi þing hafi verið mun styttra en hefðbundið er tókst, með elju, aga og útsjónarsemi að koma um 90 prósent þeirrar metnaðarfullu þingmálaskrár sem lögð var fram inn í þingið á tíma.
Undirliggjandi í öllu sem ríkisstjórnin og meirihlutinn gerir er sá tónn að nú sitji stjórn sem vinnur fyrir fólkið í landinu, er þjónandi stjórnvald, en ekki ríkisstjórn sem situr fyrst og síðast fyrir sjálfa sig og fylgitungl sín innan þess valdakerfis sem hefur einkennt íslenskt samfélag. Valdakerfis þar sem það hefur skipt meira máli hver þú ert heldur en hvað þú getur. Valdakerfi sem hefur einkennst að því að skammta tækifærum, upplýsingum og peningum annarra til þeirra sem eru þér þóknanlegir, en ekki á grundvelli þess að byggja upp sanngjarnt, skynsamlegt og vel rekið samfélag.
Það kom okkur sem störfum innan stjórnarmeirihlutans ekki á óvart að framlagning hápólitískra mála, sem endurspegla þessar breyttu áherslur, myndu mæta andstöðu áðurnefnds valdakerfis. Undir það vorum við búin og vel hefur tekist að undirbyggja málflutning Samfylkingarinnar og ríkisstjórnarinnar í heild í þeim pólitísku átökum sem eiga að fara fram um slík mál.
Það sem hefur hins vegar komið á óvart er að flokkarnir sem var hafnað sem sögulegum hætti í síðustu kosningum virðast telja sig eiga einhverskonar hefðarrétt á því að ráða landinu. Þrátt fyrir að hér sitji ríkisstjórn með skýrt lýðræðislegt umboð og stóran meirihluta þingmanna þá hafa forvígismenn þessara flokka lýst því yfir að það sé heilög skylda þeirra að koma í veg fyrir umbótamál ríkisstjórnarinnar. Ekki tala gegn þeim, líkt og leikreglurnar gera ráð fyrir, heldur koma í veg fyrir. Banna þau.
Það hefur helst verið gert með allskyns fordæmalausum tafarleikjum og málþófi. Við það verður auðvitað ekki unað.
Ég get sagt það skýrt að samstaðan milli stjórnarflokkanna þriggja, og innan hvers og eins þeirra, eflist við mótlætið og þær hindranir sem lagðar eru í vegi þeirra. Myndast hefur sterkt og mikið traust og það róa allir í sömu átt, til móts við betra samfélag. Þar er enda munurinn á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og þeim sem setið hafa á síðustu árum. Hún gengur í takt, þar er virðing borin fyrir hvort öðru og stunduð virk hlustun.
Það gefur meirihlutanum líka gríðarlega mikinn kraft að finna stuðning á meðal þjóðarinnar. Hann birtist bæði í daglegum samskiptum við landsmenn og skýrt í þeim könnunum sem gerðar eru á afstöðu fólks til ríkisstjórnarinnar, stjórnarandstöðu og þeirra mála sem tekist er á um. Þær sýna hvernig staða mála er á hverjum tíma og endurspegla afstöðu kjósenda til verka fólks og flokka.
Það er mikilvægt að sjá þann meðbyr sem er með bæði Samfylkingunni og ríkisstjórninni nú þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur stýrt landinu í næstum sjö mánuði og birtist í könnuninni sem farið er yfir hér að ofan. Þann meðbyr sem birtist í könnunum um afstöðu fólks til lykilmála stjórnarinnar, eins og leiðréttingu veiðigjalds, þar sem næstum tveir af hverjum þremur landsmönnum styðja málið. Að finna þann meðbyr sem felst í afstöðu fólks gagnvart því óbilgjarna málþófi stjórnarandstöðunnar sem staðið hefur yfir og þá hvatningu sem við finnum út um allt samfélagið um að gefa ekki tommu eftir.
Lokaspretturinn á þessu þingi er nefnilega byrjunin á lengra ferli umbóta og bjartari tíma þar sem ríkisstjórn, þing og þjóð ganga í takt. Og hann setur tóninn fyrir það sem fram undan er.
Að lokum við ég færa kærar kveðjur til alls jafnaðarfólks um allt land. Takk fyrir frábær viðbrögð við Kratanum og stuðning við stjórn og þingflokk.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars.
Þórður Snær Júlíusson
