Vikan: Veiðigjöld og Vestfjarðafundir

Vikan á þingi hefur meira og minna farið í umræðu um veiðigjöld en 2. umræða um frumvarpið hófst á miðvikudaginn og stendur enn yfir. Áætla má að umræðan standi eitthvað áfram næstu daga en forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, hefur sagt að hún geri ráð fyrir þingi út næstu viku.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fór ásamt Örnu Láru Jónsdóttur þingmanni á Vestfirði í gær og átti opið samtal við íbúa á Tálknafirði og Ísafirði á fjölmennum fundum sem fram fóru í hádeginu og síðdegis.

Á fundunum var mikið rætt um veiðigjaldið og innviðagjald á skemmtiferðaskip sem tók gildi á þessu ári. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að styrkja innviði og atvinnulíf á svæðinu voru líka ofarlega í huga fundargesta.

Fundur í Breiðholti á laugardag

Kristrún hefur haldið fjölda funda um allt land síðan ríkisstjórn undir hennar forystu tók við og á morgun, laugardaginn 21. júní kl. 11:00, verður opinn fundur í Leiknissalnum í Breiðholti þar sem forsætisráðherra og Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður ræða málin.

Öll velkomin!

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading