Logi: Sókn flokksins „ævintýri“ sem gerir erfið ár þess virði

„Ég held að fyrsta verkefni mitt hafi verið bara á öðrum degi að segja öllu starfsfólki upp, nema skrifstofustjóra, sem féllst á að vinna í hlutastarfi,“ segir Logi Einarsson um fyrstu daga sína í embætti formanns Samfylkingarinnar árið 2016.

Logi tók við flokknum á erfiðum stað og án þess að hafa séð fyrir sér að sækjast eftir leiðtogahlutverkinu, en segir að á fyrstu mánuðunum eftir að hann tók við sem formaður hafi flokkurinn hins vegar notið þess að vera víða ágætlega sterkur í sveitarstjórnum og átt rödd á því sviði. Þriggja manna þingflokkurinn hafi líka gert sitt besta til að láta rödd jafnaðarmanna heyrast.

„Við áttum líka mjög trygglynt fólk sem þjappaði sér saman og það var alveg ágætt,“ segir Logi, sem í samtali við Þórð Snæ Júlíusson í hlaðvarpi Kratans ræðir um tíma sinn á stóli formanns og bæði fortíð og framtíð Samfylkingarinnar.

Logi lýsir því að eftir á að hyggja hafi hann kannski verið of rólegur í tíðinni yfir stöðu flokksins eftir kosningarnar árið 2016. Það sjái hann eftir á, eftir að hafa fylgst með Bjartri framtíð hverfa árið 2017 og svo Pírata og Vinstri græn detta út af þingi í síðustu kosningum.

Samfylkingin fékk 5,7 prósent atkvæða í kosningunum 2016 og var Logi eini kjördæmakjörni þingmaðurinn. Nú eru hins vegar nýir tímar hjá flokknum, undir forystu Kristrúnar Frostadóttur, sem leysti Loga af hólmi sem formaður.

„Það var mjög gott þegar það birtist á sviðinu manneskja sem var til í þetta verkefni. Mér þykir vænt um, að hafa tekið þátt í því ásamt auðvitað mörgum öðrum, að leiða hana til áhrifa í flokknum,“ segir Logi.

„Að hafa haldið sjó og vera núna þátttakandi í því eftir eftir að Kristrún kemur og rífur flokkinn upp og yfir 20 prósent og verður stærsti flokkurinn. Það er kannski ævintýrið sem eftir á að hyggja gerir það þess virði að hafa lifað þessi fimm ár þar á undan,“ segir Logi einnig í viðtalinu.  

Samfylkingin hafi fundið sósíaldemókratíska kjarnann

Hann segir í viðtalinu að hann telji Samfylkinguna hafa fundið kjarnann sinn aftur og lýsir sínu eigin pólitíska ferðalagi, frá róttækri vinstrimennsku á námsárunum í Menntaskólanum á Akureyri og svo áfram, til Noregs, þar sem Logi heillaðist af samfélagi sem byggt var upp af sósíaldemókrötum í Verkamannaflokknum.

„Ég er mjög róttækur maður í menntaskóla, með Sigmundi Erni [Rúnarssyni] og Óla Birni Kárasyni og Guðlaugi Þór [Þórðarsyni] og þá var ekkert í boði að vera miðjumaður, þú varst annað hvort hægrimaður eins og Óli Björn eða Gulli Þór eða róttækur vinstri maður eins og ég og Sigmundur Ernir. En svo fór ég til Noregs og kem til baka sem sósíaldemókrati, því maður sá að það var hægt að reka samfélög sem virkuðu ágætlega, þar sem hlutirnir voru með hófsamari hætti, en horft til lengri framtíðar. Mér sýnist Sigmundur hafa færst inn á miðjuna með mér en mér sýnist Gulli vera á nákvæmlega sama stað og hann var þegar hann var í menntaskóla,“ segir Logi í viðtalinu.

Hann segir að Samfylkingin í dag sé orðin eins og hús með mörgum herbergjum. Flokkurinn hafi ákveðin grunngildi, en innan flokksins geti fólk „vel tekist á um sjónarmið sem aðgreina okkur.“

„Ég held að næstu skref okkar séu að tálga dálítið niður af þessum risastóru doðröntum sem stefnumál okkar eru, reyna að sameinast um grunngildin og leyfa okkur svo bara á kurteisislegan og siðmenntaðan hátt að takast á um það sem kann að greina á milli,“ segir Logi, sem einnig nefnir að hann telji að meiri áhersla á grunngildi jafnaðarstefnunnar geti verið „ákveðin leið til að minnka og eyða þessum asnalegu deilum sem verða á milli einstakra hópa“ og nefnir þar deilur sem stundum hafa verið milli höfuðborgar og landsbyggðar í ýmsum málum.

Vonar að formaðurinn geti dugað í 16 ár

Logi segir í viðtalinu að hann telji flokkinn á góðum stað í dag og vonar að Kristrún Frostadóttir verði sem lengst í embætti formanns. „Ég vona að við séum með nógu ungan formann til að duga í 16 ár, að minnsta kosti,“ segir Logi og bætir við:

„Ég held það hafi ekki endilega verið gott fyrir flokkinn hvað hann hefur haft marga formenn á sínum stutta tíma. Það tekur tíma að móta flokk eftir sínu höfði með sjónarmiðum grasrótarinnar og ég held við séum í þeirri stöðu núna og að við séum að sigla inn í framtíð sem gerir okkur kleift að styrkja okkur enn meira.“

Viðtalið við Loga er fjórða viðtalið í viðtalaröð við fyrrverandi formenn Samfylkingarinnar í hlaðvarpi Kratans. Finna má þættina á öllum hlaðvarpsveitum.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading