Guðmundur Ari og Arna Lára tóku þátt í eldhúsdegi

Almennar stjórnmálaumræður, eldhúsdagsumræður, fóru fram á Alþingi á miðvikudagskvöld, en þær eru fastur liður er líða fer að þinglokum. Fyrirkomulagið var þannig að tveir þingmenn frá hverjum flokki töluðu. Guðmundur Ari Sigurjónsson og Arna Lára Jónsdóttir töluðu fyrir hönd Samfylkingarinnar.

Guðmundur Ari tók til máls í fyrri umferð og lagði hann meðal annars áherslu á efnahagsmál, öryggismál og alþjóðasamstarf í ræðu sinni.

„Með ábyrgum rekstri ríkissjóðs, sterkum innviðum og samfélagi sem býr við öryggi og traust leggjum við grunninn að því norræna velferðarsamfélagi sem við eigum hér saman. Á þeim trausta grunni sköpum við samfélag þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra, læra og vaxa á eigin forsendum, óháð bakgrunni eða búsetu. Við sköpum aðstæður þar sem öflugir skólar og kraftmikil nýsköpun knýja áfram atvinnulífið sem skapar verðmæti fyrir þjóðina alla. Og það er á þessum grunni sem við tryggjum að börnin okkar, ömmur og afar fái aðgang að fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu þegar á þarf að halda,“ sagði Guðmundur Ari í ræðu sinni, en hana má lesa í heild sinni  hér.

Arna Lára talaði um verk ríkisstjórnarinnar undanfarið hálft ár og þau framfaraskref sem verið er að stíga á þessu vorþingi. Hún sagði skiljanlegt að margir landsmenn væru „búnir að gleyma því hvað samstiga ríkisstjórn getur gert, hvað hægt er að áorka miklu þegar gengið er í takt, þegar áhersla er lögð á að þjóna en ekki bara stjórna“.

Einnig ræddi hún um innviðaskuldina sem ríkisstjórnin ætlar að taka á og fjármál hins opinbera, sem ríkisstjórnin hyggst snúa til betri vegar.

„Okkur er alvara. Við erum mætt hingað til að sýna það í verki. Við ætlum að stækka kökuna. Við ætlum að auka velferðina. Við ætlum að sýna ábyrgð í ríkisfjármálum og dreifa byrðunum með sanngjörnum hætti. Innviðir verða bættir. Við ætlum að stjórna á grunni þess að hér sé samfélag sem vinnur saman að heildarhag, ekki bara hópur einstaklinga eða fjölskyldna sem búa á sama svæði. Við ætlum að vinna fyrir ykkur og við skynjum það sterkt að þjóðin finnur það,“ sagði Arna Lára, en ræðu hennar má lesa í heild sinni  hér.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading