Arkitektinn og dansarinn Logi Már Einarsson er menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra í umboði Samfylkingarinnar.
Logi hefur haft í ýmsu að snúast síðan hann tók við embætti. Hann hefur lagt fram fimm lagafrumvörp. Þar er að finna breytingar á Menntasjóði námsmanna sem breytir vaxtaviðmiðum námslána, rýmkar heimildir og svigrúm til endurgreiðslna og rýmkar skilyrði til að hljóta námsstyrk auk þess að hann verður veittur á hverri önn en ekki í lok náms svo eitthvað sé nefnt.
Þá hefur Logi lagt fram frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Mikilvægt er að mæta rekstrarvanda fjölmiðla á Íslandi og því var mikilvægt að höggva strax á augljósan hnút með þessari bráðabirgðalausn og hefja heildarendurskoðun á málaflokknum en stefnt er að því að sú vinna klárist á kjörtímabilinu.
Frumvarp um ráðherra um breytingar á starfsemi Óperunnar á Íslandi hefur vakið athygli. Með því er stefnt að því að Óperan verði hluti af Þjóðleikhúsinu og þannig kjarnastofnun fyrir óperulist á Íslandi. Frumvarpið er afrakstur langrar vinnu í ráðuneytinu og er nú lagt fram í annað sinn á þingi en nú með viðbótum frá fyrra skipti. Jafnframt hafa verið lögð fram innleiðingarfrumvörp vegna reglna EES um meðalhófsprófun lögverndaðra starfsgreina og undanþágu frá viðbótarvernd í lögum um einkaleyfi.
Logi hefur tilkynnt að hann muni halda opna viðtalstíma og heimsóknir víða um land á kjörtímabilinu en sú fyrsta var á Ísafirði 21. maí sl. Fleiri ferðir verða auglýstar í haust og við hvetjum lesendur til þess að nýta sér tækifærið og beintengja sig við ráðherra.
