Oddný Harðardóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segist ekki sammála því að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi ætlað sér að ganga í of mörg stór verkefni á sama tíma á árunum eftir hrun.
Í samtali við Þórð Snæ Júlíusson framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar í hlaðvarpi Kratans segir Oddný að henni þyki sú gagnrýni á ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ekki vera réttmæt.
Oddný nefnir í því samhengi að umsókn um inngöngu í Evrópusambandið hafi verið samhangandi liður í stóra verkefninu sem endurreisn íslenska efnahagskerfisins var.
„Hugsunin var auðvitað sú að komast í betra efnahagslegt samband við Evrópuríkin og fá styrk frá Evrópska seðlabankanum eftir að vera búin að taka upp evru og mynda þá einhvern stöðugleika. Það auðvitað hékk saman við endurreisnina í efnahagslífinu svo mér fannst þetta bara sjálfsagt að við tækjum þetta skref,“ segir Oddný.
Breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og stjórnarskránni voru einnig á meðal þeirra verkefna sem ríkisstjórnin ætlaði sér að ráðast í en náðu ekki fram að ganga á kjörtímabilinu 2009 til 2013.
„Við féllum á tíma með mörg af þessum stóru verkefnum, við hefðum þurft annað kjörtímabil en fengum það ekki. En ég hef aldrei verið sátt við það þegar fólk og jafnvel innan okkar raða er að taka upp þessa gagnrýni, sem stjórnarandstæðingar höfðu hátt um, að við hefðum ætlað að breyta of miklu. Því það þurfti að gera það og enn standa stór verkefni út af, sem við þurfum sannarlega á að halda ef við ætlum í alvörunni að tala um stöðugleika og að við getum byggt upp gott samfélag til framtíðar,“ segir Oddný.
Fékk „dauðadoða“ þegar hún var kölluð inn í ríkisstjórn
Oddný rifjar í samtalinu upp þegar hún var skipuð í ráðherraembætti haustið 2011. Þá var hún þingflokksformaður Samfylkingarinnar og vitað var að breytinga væri að vænta á ríkisstjórninni og þær yrðu tilkynntar á þingflokksfundi.
„Ég er að stýra fundi og gef Jóhönnu orðið og hún segir: „Við höfum ákveðið breytingar á ríkisstjórn og niðurstaðan er sú að Oddný Harðardóttir verður fjármálaráðherra“.
Og þetta er bara inni á þingflokksfundi?
„Já. Og aldrei verið orðað við mig.“
Ekki búið að ræða neitt við þig?
„Nei nei nei nei,“ segir Oddný.
Þetta kom því mjög á óvart. Oddný notar orðið „dauðadoði“ til að lýsa ástandi sínu það sem eftir var af þingflokksfundinum.
„Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði held ég og það var svona – „Já, hvað geri ég nú?“ Ég ákvað að taka eitt skref í einu og klára þennan fund, tók niður mælendaskrá og gaf fólki orðið,“ segir Oddný.
Eftir vinnudaginn ók hún síðan heim til sín, út í Garð, og ákvað að fara aðeins út á Garðskaga og horfa út á hafið áður en hún færi að tala við fólkið sitt heima. Þegar hún ók síðan inn í bæinn voru Garðbúar búnir að flagga víða í bænum, sem Oddnýju þótti vænt um.
„Þeir voru ánægðir með að þeirra kona væri orðin fjármálaráðherra. Síðan þurfti ég bara að glíma við það verkefni. Það var mjög lærdómsríkt og eftir situr þekking sem ekki verður frá mér tekin,“ segir Oddný.
