Greining: Samfylkingin tvisvar sinnum stærri en Sjálfstæðisflokkur í öðru Reykjavíkurkjördæminu

Samfylkingin er áfram sem áður stærsti flokkur landsins samkvæmt nýjustu könnun Gallup. Fylgi hennar mælist nú 30,7 prósent og hefur aukist umtalsvert það sem af er kjörtímabilinu, eða frá því að flokkurinn settist í forsæti í ríkisstjórn. Slík niðurstaða myndi skila Samfylkingunni sjö þingmönnum umfram þá 15 sem hún hefur nú þegar.

Könnunin sýnir líka afar sterka stöðu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem heildar. Sameiginlegt fylgi hennar hefur ekki mælst meira frá síðustu kosningum, er meira en kom upp úr kössunum þá og skilar ríkisstjórninni í heild fleiri þingmönnum. Sömuleiðis hefur stuðningur við ríkisstjórnina aukist og mælist nú yfir 67 prósent.

Þetta sýnir skýrt að mikill stuðningur er við það sem ríkisstjórnin er að gera. Venjulegt vinnandi fólk sér að komin er til valda verkstjórn þjónandi stjórnsýslu í stað valdstjórnar glundroða sem ríkt hefur á undanförnum kjörtímabilum.

Í niðurbroti á könnun Gallup er líka að finna mörg gleðileg tíðindi fyrir okkur Samfylkingarfólk. Flokkurinn okkar er nú stærsti flokkurinn í öllum kjördæmum nema Suðurkjördæmi, þar sem dregur verulega á milli okkar og Sjálfstæðisflokks og er munurinn nú innan skekkjumarka. Á síðastliðnum mánuði hefur Sjálfstæðisflokkurinn tapað um fjórum prósentustigum þar en við bætt vel við okkur, eða 2,4 prósentustigum.

Heilt yfir bætir Samfylkingin við sig fylgi í öllum kjördæmum nema Reykjavík suður, þar sem staðan er þó enn alveg við heildarfylgi. Í Reykjavík norður náum við 40 prósentum og erum, líkt og sést á myndinni hér að neðan, að mælast með rúmlega tvisvar sinnum meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn, sem er nú með undir 20 prósenta fylgi í Reykjavík. Samfylkingin fer enn fremur yfir 30 prósenta múrinn í bæði Kraganum og Norðausturkjördæmi.

Meðbyr inn í lokavikurnar í þinginu

Líkt og sönnum jafnaðarflokki sæmir mælist Samfylkingin líka stærsti flokkurinn hjá öllum aldurs-, menntunar- og tekjuhópum. Viðbótarfylgið kemur víða að, en mest frá flokkum sem náðu ekki inn á þing í síðustu kosningum og þeim sem kusu ekki í fyrra eða skiluðu auðu. Þá er sífellt stærri hópur fyrrverandi kjósenda Framsóknarflokks að ákveða að setja X við S.

Þessi þróun er að eiga sér stað í aðdraganda þess að þinglok vofa yfir, þar sem til stendur að afgreiða mörg stefnumarkandi mál ríkisstjórnarinnar. Þótt könnun sé aldrei neitt annað en punktmæling þá sýnir hún mikinn meðbyr með verkum ríkisstjórnarinnar og þingflokks Samfylkingarinnar. Sá meðbyr er þakklátur og mun nýtast vel í að ýta þjóðþrifamálum yfir línuna á lokametrum þingstarfa.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading