Jóhann Páll Jóhannsson er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í umboði Samfylkingarinnar. Jóhann er fyrrverandi blaðamaður, með MS-próf í evrópskri stjórnmálahagfræði og sagnfræði.
Jóhann hefur haft í mörgu að snúast til að vinda ofan af áralöngu aðgerðaleysi stjórnvalda í þeim málaflokkum sem undir hann heyra.
Nýlega var kynnt aukning á fjármunum til byggingar ofanflóðavarna en framkvæmt verður fyrir um 4 milljarða á þessu ári til að verja íbúðarhús á fimmtán þéttbýlisstöðum víða um landið.
Loftslags- og orkusjóði hefur verið falið að veita garðyrkjubændum sérstakan fjárstuðning til að bæta orkunýtni og orkusparnað í sínum rekstri. Sjóðnum hefur einnig verið falið að veita styrki vegna kaupa á nytjahjólum. Það eru hjól sem hönnuð eru til að flytja farþega eða farm og geta eftir atvikum leyst bíla af hólmi. Um er að ræða góða viðbót við rafbílavæðinguna til að styðja við vistvæna ferðamáta.
Jóhann Páll hefur mælt fyrir frumvarpi á þinginu sem miðar að því að bregðast við héraðsdómi í hinu svokallaða „Hvammsvirkjunarmáli“ en með frumvarpinu er brugðist við ýmissi óvissu sem skapaðist í kjölfar dómsins, m.a. varðandi lagastoð til breytinga á vatnshloti vegna framkvæmda.
Sem dæmi um önnur frumvörp frá Jóhanni eru lagabreytingar vegna orkuöflunarmarkmiða, raforkuöryggis, lagður til grunnur að markaðsreglum um raforkuviðskipti, viðskiptakerfis með losunarheimildir og innleiðingar EES-reglugerðar um plasttappa eins og frægt er orðið. Málin eru sem stendur öll í þinglegri meðferð að undanskildu plasttappamálinu sem orðið er að lögum.
Undir lok marsmánaðar var opnað fyrir umsóknir um styrki vegna stærsta jarðhitaátaks þessarar aldar en einum milljarði verður veitt til leitar og nýtingar jarðhita til 2028. Þar verður lögð sérstök áhersla á að nýta jarðhita til almennrar húshitunar á svæðum sem nú styðjast við raforku eða olíu til húshitunar.
Til að loka yfirferðinni má nefna að Jóhann Páll setti nýjan vef Veðurstofunnar í loftið í vor. Sá vefur heitir www.gottvedur.is og er fyrsta skrefið í endurbótum á vef Veðurstofunnar. Margir spekingar hafa haldið því fram að með þessu hafi Jóhann tryggt okkur þetta ofur veður í maí. Ritstjórn Kratans tekur þó ekki ábyrgð á þeirri staðhæfingu.
