Fjölgun hjúkrunarrýma

Í kosningabaráttunni talaði Samfylkingin fyrir þjóðarátaki í umönnun eldra fólks með sérstaka áherslu á hröðun uppbyggingar hjúkrunarrýma.

Markmiðið var skýrt, að setja viðkvæmasta hópinn í forgang.

Mikill skortur hefur verið á hjúkrunarrýmum en þau eru mun ódýrari en legurými á sjúkrahúsum. Árlegur kostnaður við legurými á sjúkrahúsi er 70 milljónir á meðan hann er 17 milljónir fyrir hjúkrunarrými. Það er því augljós hagræðing innan heilbrigðiskerfisins sem fylgir.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á fjölgun hjúkrunarrýma. Nú þegar hefur verið gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Ríkisstjórnin er þannig að greiða fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila með því að fella á brott kostnaðarþátttöku sveitarfélaga.

Kyrrstaðan rofin

Áætlað er að taka í notkun 120 rými á þessu ári og afla 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026 – 2028 og vinnan er þegar hafin.

Kyrrstaða hefur verið rofin á Húsavík þar sem skóflustunga var tekin árið 2021 en svo var hætt við byggingu hjúkrunarrýmis þar. Nú er áætlað að framkvæmdir hefjist í desember á þessu ári. Samkomulag um nýtt hjúkrunarrými á Akureyri hefur þegar verið undirritað, skóflustunga í Hveragerði var tekin og nýtt glæsilegt hjúkrunarrými í fyrrum skrifstofubyggingu Icelandair við Nauthólsveg verður tekið í notkun fljótlega en umbreytingin er þegar hafin.

Þessi ríkisstjórn lætur verkin tala!

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading