Í vikunni fór dágóður tími í 1. umræðu um breytingar á leigubílafrumvarpi. Frumvarpi sem þverpólitísk sátt er um. Sjálfstæðismenn hafa fylgt fordæmi Miðflokksmanna sem leitt hafa tafarleiki þessa vikuna. Ætlunin með bættu frumvarpi er að tryggja aðgengi og öryggi fyrir neytendur, meðal annars með því að setja á stöðvaskyldu fyrir bílstjóra að nýju og auka kröfur á leigubifreiðastöðvarnar. Þrátt fyrir að allir séu í grunninn sammála um breytingarnar þá stóð þessi umræða yfir í tæpar þrettán klukkustundir áður en málinu var vísað til umhverfis- og samgöngunefndar.
Á miðvikudaginn tók Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, sem er yfirlögfræðingur framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ (Grindavíkurnefnd), sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Hann leysir Dag B. Eggertsson af sem er í opinberum erindagjörðum erlendis. Pétur gerði sér lítið fyrir og hélt jómfrúarræðu nokkrum mínútum eftir að hann skrifaði undir drengskaparheitin. Þar fjallaði hann um málefni Palestínu og hvatti ráðherra okkar til að beita sér fyrir aðgerðum, viðskiptaþvingunum, í samstarfi við líkt þenkjandi ríki.
Pétur Marteinn er ekki bara lögfræðingur og nú varaþingmaður, hann er líka margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis. Eins og landsmenn vita hefur sólin leikið við okkur undanfarið og því var upplagt að taka vel á móti nýjum varaþingmanni. Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður rifjaði því upp gamla frístundatakta og tók leik við Pétur í Mæðragarðinum sem er í göngufæri við Alþingi.

Kristrún Frostadóttir og Logi Einarsson skelltu sér í Norðausturkjördæmi á fimmtudag og héldu þrjá opna fundi, á Akureyrarflugvelli, Vopnafirði og í Neskaupstað. Á fundunum áttu þau gott samtal við gesti um ýmis stór mál sem hafa verið á dagskrá hjá ríkisstjórninni eins og veiðigjöldin, búvörulögin og innviðaskuldina á landsbyggðinni.
Þessi samtöl við fólkið í landinu eru gríðarlega mikilvæg.
Gestir fundanna voru á öllum aldri en þessi 11 ára dama, nemandi við Vopnafjarðarskóla, vatt sér upp að Kristrúnu og sagði af fyrra bragði: „Góðan daginn. Ég er mikill aðdáandi þinn.“
Heimsókn 60+
Í vikunni fengum við góða heimsókn frá stjórn 60+ en þau standa fyrir mikilvægri grasrótarvinnu í flokknum. Þau fengu leiðsögn um hús Alþingis og tóku svo þátt í þingflokksfundi. Kristín Ágústa Guðmundsdóttir flutti góða ræðu í upphafi fundar og Finnur Birgisson hélt svo áhugaverða kynningu um kjör eldri borgara. Takk kærlega fyrir komuna, frábært að fá ykkur á Alþingi.

Hér má stjórn 60+ ásamt þingflokki Samfylkingarinnar. Frá vinstri: Gunnlaugur H. Jóhannsson, Finnur Birgisson, Kristín Á. Guðmundsdóttir, Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Jónas Hreinsson og Reynir Vilhjálmsson. Á myndina vantar Jónas Sigurðsson sem einnig er í stjórn landshreyfingarinnar.
