Gætum við unnið allan fisk innanlands?

Eydís Ásbjörnsdóttir, þingkona okkar í Norðausturkjördæmi, var málshefjandi í sérstakri umræðu um vinnsluskyldu á sjávarafla sem fram fór á fimmtudag. Til andsvara var Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Eydís óskaði eftir umræðunni m.a. vegna ákalls sem hefur komið frá aðilum í sjávarútvegi um að það þurfi að hefta útflutning á óunnum fiski frá Íslandi með einhverjum hætti.
Í ræðu sinni benti Eydís meðal annars á að talsmenn innlendra fiskvinnsla hefðu bent á að hægt væri að búa til mun meiri útflutningsverðmæti úr fiski með því að fullvinna hann á Íslandi, auk þess sem frekari fiskvinnsla innanlands myndi skapa fleiri störf hringinn í kringum landið. Til viðbótar nefndi hún að það hefði skaðleg áhrif á ímynd íslenskra sjávarafurða að flytja út óunninn fisk.

Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður okkar í Reykjavík tók einnig þátt í umræðunni og sagði afar mikilvægt verði að við leituðum leiða til að hámarka þau verðmæti sem hafið gefur og reyna að tryggja að það sé gert innanlands í ríkari mæli. Atvinnuvegaráðherra nefndi í ræðu sinni að ef til skoðunar kæmi að setja á vinnsluskyldu á afla sem landað er hérlendis þyrfti að greina sérstaklega hvort það fæli í sér viðskiptahindrun samkvæmt EES-samningnum. Vert væri að skoða málið frá ýmsum sjónarhornum.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading