Frumvarpið um kílómetragjald hefur verið nokkuð til umræðu síðustu daga, vegna fréttar sem birtist á RÚV undir fyrirsögninni „Skattar á smábíla hækka“. Þar var dregið sérstaklega fram og gert að algjöru aðalatriði að samþykkt frumvarpsins mun hækka þau gjöld sem litlir sparneytnir bílar greiða fyrir að nota vegina, en lækka þau á stærri bíla sem eyða meira eldsneyti.
Þetta þykir mörgum eflaust órökrétt. Það þótti mörgum í okkar hópi hér á þinginu líka við fyrstu sýn, en eftir greinargóðar kynningar frá sérfræðingum ráðuneytanna um útfærslu nýja kerfisins eru efasemdir á bak og burt.
Nýja kerfið, sem felur í sér að gjöldin sem við greiðum við bensíndæluna í dag hverfa og kílómetragjald verður tekið upp í staðinn, er stillt þannig af að meðalbíll, sem eyðir 7,5 lítrum af eldsneyti á hverja 100 kílómetra, mun greiða nákvæmlega jafn mikið fyrir notkun sína á vegunum og áður.
Ef bílar eyða meira eldsneyti þá greiða þeir örlítið minna, en ef þeir eyða minna eldsneyti, þá greiða þeir örlítið meira en þeir gerðu áður í opinbergjöld. Breytingin er fyrir flesta bifreiðaeigendur algjörlega minniháttar eins og reyndar er dregið fram neðanmáls í áðurnefndri frétt RÚV.
Eigandi jeppa, sem eyðir 10 lítrum á hundraðið og ekur 14 þúsund kílómetra á ári, sparar um 26 þúsund krónur á ári í nýja kerfinu. Eigandi smábíls sem eyðir 6 lítrum á hundraðið þarf hins vegar að greiða um 16 þúsund krónum meira á ári, eða um 1.300 krónum á mánuði.
Þetta finnst sumum eðlilega vont, þar sem breytingin felur í sér minniháttar hvata til þess að vera á stórum og eyðslufrekum bíl. En er kerfið fullkomið í dag?
Ef við horfum á stöðuna eins og hún er í dag þá er það heilt yfir svo að eldri bílar, sem eyða meiru, borga meira fyrir að nota vegina en yngri bílar.
Og hver eru það sem eiga eldri og eyðslufrekari bíla?
Það er gjarnan tekjulægra fólk. Það sést glögglega í greiningum sem unnar hafa verið í ráðuneytunum við vinnslu þessa máls að þau sem munu græða nokkra þúsundkalla vegna breytinga á mánuði eru mun líklegri til að vera á lægri enda tekjuskalans en þeim hærri.
Tekjulægra fólk er því í dag að borga meira fyrir að nota vegina en þau tekjuhærri sem hafa ráð á því að aka um á nýrri og sparneytnari bílum.
Með innleiðingu kílómetragjalds munu allir bílar undir 3,5 tonnum að þyngd greiða sama kílómetragjaldið, 6,7 krónur á hvern ekinn kílómetra. Við jafnaðarfólk getum staðið keik með þessum breytingum.
Kílómetragjaldið kemur inn í þingið til annarrar umræðu á næstunni og það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig sú umræða fer fram.
Fyrir þau sem vilja kynna sér málið í þaula og leiða umræðuna í heita pottinum á morgnana er óhætt að benda á vefinn Vegir okkar allra, þar sem nýja gjaldtökukerfið er útskýrt í þaula.
