Reykjavíkurborg, undir forystu Samfylkingarinnar og borgarstjórans Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, getur ansi vel við unað þessa dagana. Ársreikningur síðasta árs sýnir að A-hluti reksturs hennar, sá hluti sem rekinn er fyrir skattfé, skilaði 4,7 milljarða króna hagnaði í fyrra. Sú niðurstaða er viðsnúningur upp á næstum tíu milljarða króna milli ára og hagnaðurinn er sjö sinnum það sem áætlun gerði ráð fyrir. Það skýra plan sem okkar fólk í borginni lagði fram í kórónuveirufaraldrinum um að auka fjárfestingar til skamms tíma til að draga úr efnahagsáfalli til lengri tíma gekk fullkomlega upp.
Lykiltölur sem notaðar eru til að mæla fjárhagslegt heilbrigði sveitarfélaga sýna svart á hvítu að staðan í Reykjavík er miklu betri en í flestum nágrannasveitarfélögum hennar.
· Skuldahlutfall Reykjavíkur var 105 prósent um síðustu áramót og lækkaði úr 113 prósentum á einu ári. Til samanburðar var það á bilinu 118 til 141 prósent hjá Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Hafnarfirði.
· Einungis eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu er með veltufjárhlutfall yfir 1,0, sem þýðir að sveitarfélag eigi nægjanlegt laust fé um áramót til að greiða útistandandi skuldir sem gjaldfalla á komandi ári. Það sveitarfélag er Reykjavík.
· Veltufé frá rekstri hjá Reykjavík, það fjármagn sem stendur eftir úr rekstri sveitarfélags í lok hvers árs og hægt er að nýta í fjárfestingar eða niðurgreiðslu á skuldum, var 6,3 prósent af tekjum höfuðborgarinnar á síðasta ári.
· Skuldir á hvern íbúa í Reykjavík lækkuðu á milli ára, fóru úr 1.449 þúsund krónum í 1.395 þúsund krónur. Þetta er næst besta staðan á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að hver íbúi í Reykjavík borgi miklu meira en aðrir íbúar svæðisins í félagslega þjónustu og þá staðreynd að næstum átta af hverjum tíu félagslegum íbúðum og tvær af hverjum þremur almennum íbúum þar séu staðsettar í Reykjavík.
Ofan á allt bárust þær góðu fregnir að samgöngubyltingin á höfuðborgarsvæðinu, sem leidd hefur verið af Samfylkingunni, og felur meðal annars í sér að byggja upp fjölbreyttara samgöngukerfi, sé að skila stórkostlegum árangri. Teljarar sýna að hjólandi á svæðinu hefur fjölgað úr 70 þúsund í mars 2022 í 148 þúsund í mars 2025. Það er aukning um 111 prósent.
Í síðasta mánuði var svo öllum börnum 18 mánaða og eldri boðið leikskólapláss eftir sumarið og í vikunni bætti borgin um betur og tilkynnti um að það eigi að fjölga leikskólaplássum um 162 með fjárfestingu upp á 2,1 milljarð króna. Það er því sannarlega verið að „Brúa bilið“ í Reykjavík.
