Vikan: Íþróttir og Íslandsmet

Í vikunni höfum við notið góðs af kröftum Hannesar S. Jónssonar, varaþingmanns í Norðvesturkjördæmi, en eins og fram hefur komið var Arna Lára stödd í Albaníu þar sem hún sinnti kosningaeftirliti.

Hannes er framkvæmdastjóri KKÍ og íþróttir því ofarlega í hans huga. Í jómfrúarræðu sinni talaði hann um mikilvægi íþrótta í samfélaginu og þá vinnu sem sjálfboðaliðar leggja íþróttahreyfingunni til, eitthvað sem við í Samfylkingunni þekkjum afar vel. Án sjálfboðaliða værum við tvímælalaust ekki í þeirri stöðu sem við erum í dag. Það er jú að stórum hluta sjálfboðaliðum að þakka hversu vel gekk í kosningunum síðasta vetur.
Í hádeginu í gær funduðu þingmenn Samfylkingarinnar með fulltrúum ÍSÍ, Vésteini Hafsteinssyni og Kristínu Birnu Ólafsdóttur og áttu gott samtal um afreksmál.

Það var ekki annað hægt fyrir Hannes en að skora forsætisráðherra á hólm í einn á móti einum. Forsætisráðherra tók áskoruninni og niðurstaðan var hörkuspennandi einn á móti einum á Klambratúni. Á meðan á leik stóð ræddu þau meðal annars mikilvægi íþrótta fyrir ungt fólk, mikilvægi þess að gera íþróttir aðgengilegar fyrir alla og nýja Þjóðarhöll.

Í síðustu viku var sett nýtt Íslandsmet í lengd 1. umræðu á Alþingi þegar stjórnarandstaðan stóð fyrir yfir þrjátíu klukkustunda umræðum um veiðigjöldin. Ekki var annað í stöðunni en að boða til laugardagsfundar sem endaði á breytingartillögu þingmanns Sjálfstæðisflokksins um að veiðigjöldin myndu fara í efnahags- og viðskiptanefnd í stað atvinnuveganefndar.

Hefðin er hins vegar sú að ekki skal fara í atkvæðagreiðslu þegar breytingatillaga um nefndir er borin upp. Því var fundi frestað og fór frumvarp um veiðigjöld ekki inn í atvinnuveganefnd fyrr en í þessari viku. Nú mun frumvarpið fá góða umfjöllun inni í nefnd, áður en kemur að 2. umræðu.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading